— arnigunnar.net

Archive
Vinnan

Amm … eftir miðavesenið síðast, ákváðum við Þorgeir að fara á Camp Nou í kvöld, ég í annað sinn. Þeir eiga leik við Glasgow Rangers í kvöld í meistaradeildinni. Miðaverðið var aðeins dýrara en á sunnudaginn, en maður er nú ekki á hverjum degi í Barcelona og hefur tækifæri til að fara á leik.

Við fórum niður í bæ í gærkvöldi að fá okkur að borða. Þar voru ekkert nema fullir Skotar úti um allt, og ekki séns að fá borð á neinum veitingastað.

Við enduðum á að fara eitthvað aðeins út fyrir á ítalskann stað, sem var bara mjög góður. Og ekki verra að Bill Gates bauð í matinn :)

Dagarnir hafa verið stífir, mikið af stöffi troðið inn í hausinn á okkur, og vonandi að þetta komi manni eitthvað til góða í framtíðinni.

Mér finnst ég vera eins og lítið barn innanum þessa bjór og kaffisvelgi hérna í Barcelona.

Það fylgir þessum tölvuköllum alveg endalaust kaffiþamb á daginn og endalaust bjórþamb á kvöldin … og ég er bara ekki með …

Sit á Heathrow að bíða eftir flugi til Barcelona. Búinn að vera hér í 2 tíma, og á 3 eftir … svaka stuð.

Plöggaði mig inn á wi-fi gaurinn hérna og sit og skoða netið … ég ætlaði mér að reyna að horfa á Arsenal – Manchester United, en það er enginn bar hérna sem er með boltann í beinni … nett svekk það. Ef ég hefði verið aðeins seinna á ferðinni, þá hefði ég getað séð leikinn úr lofti … sá Emirates Stadium (Arsenal völlinn) og nýja Wembley þegar við vorum að koma inn til lendingar … rosa massívir vellir, báðir tveir.

Ég gleymdi næstum því að setja Honduna mína í geymslu í morgun. Ég var kominn upp að öryggistékkinu, tók allt upp úr vasanum og þar var bíllykillinn … varð að fara niður aftur og græja bílinn. Var sem betur fer ekki farinn alveg í gegn.

Og það er búið að setja upp jólatré hérna fyrir framan mig … er ekki örugglega 3. nóvember … ekki 3. desember ??

Jæja … flutt inn og allt í blússandi gír. Það eru ennþá fullt af smáverkefnum sem bíða, en það er ólýsanlega gott að vera loksins flutt inn og hætt að búa í ferðatösku.

Hlynur Snær telur nú niður dagana þangað til hann verður 5 ára … þá ætlar hann nefninlega að missa tennurnar sínar. Það var víst einhver á leikskólanum sem missti barnatennurnar, og sá var 5 ára, og minn greip það bara í sig. Vonandi verður hann ekki svekktur þegar hann kemst að því að allar tennurnar verða á sínum stað þegar hann vaknar 11. ágúst.

Það er ótrúlegt til þess að hugsa að barnið sé að verða 5 ára … við Gulla búin að vera saman í 10 ár og ég rétt skriðinn yfir þrítugt :o

Hlynur Snær er þegar búinn að eignast nokkra vini í götunni. Beint á móti okkur er einn nýorðinn 8 ára sem hann hefur aðeins leikið sér með, og við hliðina á honum er annar sem er aðeins mánuði eldri en Hlynur Snær. Þeir eru búnir að bralla ýmislegt síðan við fluttum inn. Gulla kannast við mömmu þessa stráks, var víst að selja með henni Tupperware (sem áhugasamir geta fengið gefins við tækifæri í Fannafold 130).

Af vinnunni er það að frétta að við erum komnir með endanlega skrifstofu (allavega þangað til við verðum of stórir fyrir hana). Við ætlum að koma okkur fyrir uppi á Stórhöfða, í ágætis herbergi þar. Það er alveg skelfilega stutt í vinnunna fyrir mig og alveg 100% víst að ég kem til með að sprikla eitthvað á hjólinu í vinnuna, það er alveg á hreinu. Við erum meira að segja búnir að fá gefins eitthvað af húsgögnum … vil bara ekki segja hvar … veit ekki hvort ég má það, en við kunnum þeim aðila bestu þakkir.

Síðan við fluttum inn er búinn að vera þvílíkur gestagangur … næstum fólk í mat á hverju kvöldi … greinilegt að einhverjir voru farnir að sakna okkar (eins og við allra). Okkur finnst þetta rosalega skemmtilegt að umgangast allt þetta fólk og vonum að þetta komi til með að halda áfram … svo finnst okkur líka svo gaman að sýna nýja fína húsið okkar :)

Jæja … þetta er orðið gott í bili … best að fara að koma sér í háttinn.

Jæja … þá er helgin liðin og maður kominn til vinnu aftur. Við vorum á Tálknafirði um helgina í frábæru veðri á ættarmóti. Niðjar langömmu minnar og langafa frá Ólafsvík hittust á Tálknafirði þar sem Jón Bjarnason (bróðir ömmu minnar) býr. Pabbi, Lea og Sigurlaug Birna voru líka, ásamt um 2/3 af allri ættinni. Það var grillað, farið í fótbolta, spilað og leikið alla helgina, og það var meiriháttar gaman. Gaman að hitta þetta fólk sem maður hefur ekkert samband við og hittir aldrei.

Annars fer allur aukatími í að mála og fínisera húsið þessa dagana. Um leið og við komum heim í gær fór ég upp í hús og kláraði eftri hæðina (nánast). Það er einn loftlisti sem á eftir að taka í gegn þar, og þá er hún klár. Mest öll undirbúningsvinna er búin niðri, og þá getum við farið að mála þar. Ég penslaði loftið þar í gærkvöldi og pabbi ætlaði að byrja að rúlla það í dag. Þarf örugglega 3 umferðir, málningin er svo þunn og þekur illa.

Vinnan gengur vel að venju … ég næ bara ekki að afkasta nógu miklu af því að allur aukatími fer í húsið, en það stendur til bóta þegar við verðum loksins flutt inn …. get ekki beðið. Skipið kemur á morgun með dótið og vonandi fæ ég það út fyrir helgina.

Þegar við vorum á leiðinni út á flugvöll í morgun dó Ópelinn … var að keyra, og hann bara drap á sér. Svavar mágur að tímareimin sé farin (veit samt ekki alveg hvert hún fór).

Ég hafði talað við einhvern hjá Opel á Íslandi og fékk töluna 90-95 þúsund km sem tímareimin ætti að duga. Það er svo svíndýrt að gera við bíla hérna að við ætluðum að láta gera þetta heima á Íslandi. Bíllinn er keyrður rétt um 99.000 km núna. En það átti ekki fyrir okkur að liggja og ég var vægast sagt ekki sáttur við lífið í dag. Eva bjargaði nú helling með að koma með allt dótið sem við vorum með í bílskúrnum þeirra síðan við vorum að sýna húsið.

En á morgun verður maður að taka á því og ganga frá restinni fyrir gáminn sem kemur á miðvikudaginn. Ég fæ bílinn hans Svavars lánaðann og ætla að klára þetta mæð stæl.

Ég kvaddi alla á skrifstofunni hjá Holiday Autos í dag og það var skrítin stund, þó ég komi til með að vera hérna á ferðinni töluvert, ZEUS heldur áfram að vinna fyrir þá á fullu stími.

Það var fullt út úr dyrum nánast í gær af fólki að kveðja Gullu og Hlyn … Hlynur Snær fékk örugglega fleiri pakka í gær en í síðustu afmælisveislu. Grannarnir Veronika, Johan og Adam komu fyrst. Svo komu Svavar og Katarina + börn. Svo mættu Julita og fjölskylda, og svo að lokum bestu vinir okkar hérna, Eva, Staffan og tvíburarnir (Samúel varð eftir heima). Og þau gáfu okkur eiginlega bestu gjöfina. Þau eru búin að bóka flug til Íslands 28. desember og ætla að vera hjá okkur um áramótin. Það verður alveg svakalega gaman að sýna þeim landið okkar og flugeldasýninguna á gamlárskvöld. Ég er þess vegna búinn að leggja inn pöntum á gott veður og vona að þið gerið slíkt hið saman … og kaupið nóg af flugeldum svo þau verði ekki fyrir vonbrigðum.

Gulla fékk afhendann nýja bílinn okkar í dag, sem var nú svolítið kaldhæðnislegt miðað við að Ópelinn ákvað að taka sér hvíld … við keyptum Hondu Accord sem er víst algjör draumakerra … ég er ekkert viss um að ég fái bílinn til baka þegar ég kem heim. Þannig að ef þið sjáið rauða Hondu Accord á götunni, þá gæti það verið Gulla … alveg örugglega ekki ég :(

Jæja … farinn að pakka … komið gott í bili. Skrifa örugglega ekki meira fyrr en ég kem heim til Íslands.