— arnigunnar.net

Archive
Vinir

Tobbi og Lilja eignuðust litla prinsessu í morgun … til hamingju með það öll þrjú. Hlynur Snær verður örugglega massa öfundsjúkur að Oliver eigi nú lítið systkyni …

Því ég vann í póker … þessi fyrri færsla var skrifuð þegar póker var næstum lokið, en ekki alveg. Því það var ekki Gummi sem vann pókerinn í gærkvöldi, það var ég! Gummi spilaði mikilli yfirburðastöðu úr höndunum á sér og ég og Stebbi vorum 2 eftir. Ég fór all-in á fjarkapar, en hann var með sexu par. Ég fékk svo röð og sigraði :)

Ég dúndraði nokkrum myndum af Hlyni Snæ í gær … hann var í svaka fótboltastuði. Nokkrar myndir af pókerhetjunum síðan á laugardagskvöldið líka … til hamingju Gummi !

Hlynur Snær boltastrákur

Valur – Gummersbach í handboltanum í kvöld. Við Gulla ætlum að fara með guttann og afa hans á leikinn. Báðir annálaðir Valsarar :)

Svo er stóri dagurinn á morgun. Við eigum möguleika á Íslandsmeistaratitlinum … og eigum leik gegn HK. Ég var dauðhræddur við leikinn síðasta sunnudag, en Valsmenn sýndu þar styrk sinn og völtuðu yfir FH-ingana innan vallar sem utan. Ég vona bara að menn verði jafn grimmir á morgun.

Næsta helgi verður ekki Vals-helgi, heldur póker helgi. Gulla verður í Sverige, og við strákarnir ætlum að taka smá póker sessin á laugardaginn … verður vonandi gaman, og gróðavænlegt :)

Mikil svakaleg snilld var þetta í gær … meira að segja ég var farinn að syngja á FH áhorfendapöllunum, Valsmenn léttir í lund. Það var hífandi rok í Hafnarfirðinum í gær, en við Gulla létum það ekki á okkur fá og skelltum okkur saman. Hún var í bangsagallanum sínum og varð að sögn bara ekkert kalt.

Valsmenn áttu leikinn og stúkuna. Eftir að hafa gert jafntefli við ÍA í síðasta leik var maður soldið hræddur við þennann leik … FH ingarnir kunna jú að vinna svona leiki og hafa gert þetta áður.

En Valsmenn voru þvílíkt góðir. Magnaðir alveg … grimmir í öllum aðgerðum. René Carlsen, Pálmi, Bjössi og Helgi Sig voru svakalegir í gær. Og 0-2 sigur þýðir að ef við vinnum HK í síðasta leik þá verðum við Íslandsmeistarar :)

Og í fréttum tengdum Val, þá er ég tekinn aftur við barninu mínu … valur.is. Mig langaði að starfa eitthvað í kringum félagið nú þegar við erum flutt heim, og Valsmenn hafa hugmyndir um að gera nýjann vef, og ég kom inn í það verkefni. Mjög spennandi hlutir sem gætu jafnvel vaxið eitthvað … meira um það síðar.

Fyrir utan þetta er allt í fullu svíngi hjá okkur … fullt að gera. Gulla á fullu í skólanum og endalaust mikið að gera í vinnunni hjá mér. Hlynur Snær er auðvitað á fullu í fiðlunni og gengur bara vel að sögn kennarans. Hann er líka byrjaður í íþróttaskóla hjá Val á laugardagsmorgnum, og finnst það alveg svakalega gaman. Við erum yfirleitt ekki að flýta okkur heim, dundum okkur bara þarna niðurfrá, fáum okkur að borða og svona eftir æfingu. Gott að byrja að venja hann við að koma á Hlíðarendann :)

Gulla er að fara í heimsókn til Svíþjóðar núna 5. október … ætlar að vera hjá Evu vinkonu sinni yfir helgina.

Svo er ég að fara til Barcelona á ráðstefnu 5. – 9. nóvember. Og svo skemmtilega vill til að Barca er að spila 2 heimaleiki á meðan ég er á staðnum … spurning um að reyna að finna sér miða á annan hvorn leikinn.

Jæja … gott í bili …

Hlynur Snær að gretta sig