— arnigunnar.net

Archive
Vinir

eee … jújú, alveg eins. Bara lítill tími til að skrifa um það … :o

Gulla og Hlynur Snær eyddu næstum tveimur vikum í Skandinavíu, fyrst hjá Andra og Lólý í Kaupmannahöfn og svo yfir til Sviþjóðar til Evu og Staffan.

Andri Freyr Hansson afrekaði það í Tívolíinu að hætta við eitthvað barnatækið og labba út áður en það fór af stað eins og áttræð kelling … ég held ég hefði látið mig hafa það, sama hversu hræddur ég hefði verið.

Á meðan skellti ég mér hins vegar til Portúgal að setja upp bókunarkerfið mitt hjá Eco Viagens, Portúgalskri ferða- og umboðsskrifstofu. Þetta er gríðarlega stórt skref fyrir ZEUS og gaman þegar öll vinnan sem maður hefur lagt á sig undanfarin ár er farin að bera árangur.

Ég tek hins vegar til mín orð viturs manns sem benti mér góðlátlega á að missa ekki sjónar á verkefninu, þó að vel gangi um stundarsakir.

Ég gekk frá umsókn fyrir okkur strákana um miða á 2 leiki á HM í Suður Afríku sem fram fer á næsta ári.

Við sóttum um leik í riðlakeppninni sem fram fer 21. júní og leik í 16 liða úrslitum 29. júní. Verðum þarna sem sagt í 10 daga ef við fáum miða þ.e.a.s.

Við fórum saman á HM í Þýskalandi 2006 og ákváðum þá að fara á næsta HM, hvar sem það yrði.

Sumir okkar eru forsjálir og eru búnir að vera að leggja fyrir pening í hverjum mánuði í dáldinn tíma, en sumir ekki alveg jafn forsjálir …

Þegar við vorum í Þýskalandi fengum við Arnar næstum því til að stökkva út í höfnina einn daginn … verðum helst að fá hann til að stökkva í einhverja höfnina í  Suður Afríku á næsta ári til að uppfylla draumin hans, hann er ennþá svekktur yfir að hafa ekki látið sig vaða.

Og eins og öllum tækninördum sæmir, þá eigum við að sjálfsögðu myndband af umræddu atviki í Hamborg fyrir þremur árum síðan og því var auðvitað bætt við flóru myndbanda á Google Video. Hægt er að skoða myndbandið hér fyrir neðan

( í bili )

Ég, Gummi, Arnar og Andri höfum hist reglulega í hádeginu síðan ég flutti heim frá Svíaríki, og í dag var síðasta hádegismáltíðin hjá okkur fjórum í bili, því á mánudaginn ætla Andri og co að flytja til Danmerkur.

Það er ekkert gaman að horfa á eftir þeim fara, en við erum þess full viss að þau koma aftur einhvertímann, og sem betur fer er stutt að fara yfir, bæði fyrir þau og okkur.

Góða ferð öll sömul … :)

Og í fréttum af færslunni hérna fyrir neðan, þá hefur hann Guðmundur vinur okkar ákveðið að stökkva farþega-fallhlífarstökk í ágúst. Hann fékk næstum því að stökkva þegar við steggjuðum kappann í maí, en núna ætlar hann að stökkva “for real”.

Hann er að reyna að mana mig upp í að koma með … á eftir að ákvaða það alveg … það yrði allavega gaman að fara í farþegastökk, ekki alveg viss um að ég þori samt.

Þetta eru skilaboð til Gumma Grétars. Hann er vinsamlegast beðinn um að standa við það sem hann sagði daginn sem hann var steggjaður. Ertu maður eða mús ??

Það er verið að endursýna Ísland – Svíþjóð á EM í sjónvarpinu núna. Leikurinn var að byrja. Það eru núna næstum 3 tímar síðan leik lauk og ég er ennþá svekktur. Við spiluðum eins og höfuðlaus her í fyrri hálfleik og ég var þess fullviss um að þetta færi að detta hjá okkur í seinni. Alveg handviss.

En það varð ekki … ástandið bara versnaði ef eitthvað var.

Og ég barði svo oft í sófann að það hálfa væri nóg.

En það þýðir víst ekkert að væla yfir þessu, bara rífa sig upp fyrir laugardaginn og taka leikina sem við eigum um helgina. Það góða við þetta er jú að við getum nú varla spilað mikið verr sóknarlega en við gerðum í dag.

Annars var ég að dúndra inn nokkrum myndum áðan inn á Flickr síðuna. Jólamyndir og fleira. Mamma ætti að vera sátt við það.

Hlynur Snær í Almannagjá

Svo er kjálkinn bara allur að koma til. Er farinn að geta tuggið svona einfaldann mat, en það er vont ef ég þarf að bíta fast í eitthvað. Vona bara að þetta leggist á sinn stað þegar bólgan er alveg farin.

Fótboltafélagarnir reyndu eitthvað aðeins að bæta fyrir þetta og settu boltann tvisvar í andlitið á Gumma á þriðjudagskvöldið … en hann á eftir að fá eitt almennilegt frá mér :)

Við erum með Svía í heimsókn. Eva, Staffan, Samuel, Rebekka og David komu í heimsókn til okkar á föstudaginn, og ég er meira að segja í fríi í vinnunni …

Þetta eru sannarlega búnir að vera viðburðaríkir dagar. Við leigðum bústað uppi í Brekkuskógi (þökk sé Leu) og ætluðum að fara þangað strax á föstudaginn. En þegar heim var komið sáu þau að rauðvínskútur sem þau höfði tekið með sér hafði sprungið í annarri feraðtöskunni og rauðvín lag út um allt. Það var því ekkert annað að gera en að fresta brottför í bústaðinn, og nýta þvottavélina til hins ýtrasta. Sýndum þeim Hallgrímskirkju í staðinn, fórum upp í turninn og var það ágætis sárabót.

Svo fékk Hlynur Snær hita aftur og var því ekki alveg í ferðastuði. Mamma kom þá á laugardagsmorgninum og var hjá honum meðan við fórum í bústaðinn. Styttum ferðina töluvert og ætluðum að koma heim á sunnudeginum.

Lögðum snemma af stað og áttum saman reglulega skemmtilegann laugardag. Sýndum þeim Geysi og Gullfoss í blæstri og kulda.

Sunnudagurinn var einnig mikið ævintýri. Það kom alveg brjálað veður og tvísýnt um tíma hvort við kæmumst yfir höfuð heim til Reykjavíkur. Við ákváðum eftir 2 símtöl til Vegagerðarinnar og könnunarferð niður á veg að leggja af stað. Og það var keyrt á 40-50 km hraða fyrsta spölinn. Við komumst heilu og höldnu í bæinn og þau mjög glöð að hafa upplifað smá ævintýri.

Þau voru ekkert smá sátt við að fara í pottinn í bústaðnum … held þau hafi ekki alveg trúað því að það væri pottur við hvern bústað fyrr en við sýndum þeim myndir. Og svo þegar við komum á staðinn.

Nú er stóri dagurinn, síðasti dagur ársins, og við vonumst þess heitt að veðrið verði almennilegt í kvöld og við getum skotið upp kökunum sem ég keypti hjá nr 3 í gær.

Við Staffan fórum svo í Árbæjarlaugina í morgun með börnin á meðan stelpurnar voru heima að gera klárt fyrir kvöldið. Þeim fannst þetta mikið ævintýri að fara út í snjókomuna og skella sér í heita pottinn.

Vil svo í lokin óska öllum sem nenn að lesa þetta gleðilegs árs og vonandi verður árið 2008 eins skemmtilegt og árangursríkt fyrir okkur öll eins og 2007 var.

Gleðilegt ár !