Ég var veikur í næstum heila viku. Það hefur ekki gerst svoooo lengi. Á föstudaginn fyrir rúmlega viku var Pétur yfirmaður minn og nágranni á skrifstofunni með þetta líka massa kvef. Í gríni sagði ég við hann að ég myndi örugglega ekki mæta á mánudeginum, ég yrði veikur. Og viti menn … sú spá rættist og gott betur. Þriðjudag, miðvikudag, fimmtudag og föstudag var ég alveg í tjóni. Ég reyndi að vinna soldið heima bæði fimmtudag og föstudag, en það varð nú ekkert rosalega mikið úr því, þannig séð.
Ég bara man ekki eftir neinu atviki þar sem ég hef verið veikur svona lengi. Yfirleitt hef ég verið hraustur og veikst lítið. Og í þau fáu skipti sem ég fæ einhverja flensudrullu, þá hefur hún gengið yfir á tveimur dögum. En þetta maður … úff … ég bara vona að Pétur verði ekki kvefaður aftur og dæmi mig í viku veikindi eins og núna (spurning um að láta draga launin af honum í staðinn fyrir mig :o).
Robbie Fowler er kominn heim! Þetta var staðfest í gær og ég bara gæti ekki verið ánægðari með ein leikmannaviðskipti. Liverpool fær hann á “free transfer” og Rafa gerði við hann 6 mánaða samning. Ef hann stendur sig ekki, þá þarf hann að finna sér annað lið í sumar. En ég hef enga trú á því að það gerist … hann á eftir að skora eitthvað af mörkum fyrir Liverpool og sýna hinum strækerunum hvernig á að skora mörk. Vonandi :o
Lólý kom í heimsókn á miðvikudaginn, frúnni til mikillar gleði. Þær hafa gert mikið og margt saman þessa daga og notið þess að hittast eftir langa fjarveru frá hvor annarri. Í kvöld ætlum við að taka stórt skref. Barnapían okkar kemur hingað og ætlar að passa fyrir okkur í kvöld. Við ætlum að fara út að borða með Lólý. Þetta er í fyrsta sinn sem við Gulla förum út af heimilinu að kvöldi til og skiljum guttann eftir heima. Verður gaman að komast aðeins út.
Það gengur svona glimrandi vel hjá dagmömmunni. Það eru slagsmál um að fá barnið heim á daginn. Hann er hjá henni á milli 9 og 3 og hann og Lúkas (sonur dagmömmunnar) eru eltandi hvorn annann allann daginn og skemmta sér mikið saman. Ég fór um daginn að ná í hann og það er alveg magnað að sjá. Dagmamman, Therese, talar bara sænsku við hann og hann virðist skilja allt sem sagt er við hann. Og svo eru að detta inn hjá honum sænsk orð í gríð og erg. Magnað.
Jú … og svo breytti ég pínu litunum á síðunni … vonandi gott að fá smá tilbreytingu :)
Jæja … gott í bili … Árni Gunnar.