— arnigunnar.net

Archive
Svíþjóð

Við erum með Svía í heimsókn. Eva, Staffan, Samuel, Rebekka og David komu í heimsókn til okkar á föstudaginn, og ég er meira að segja í fríi í vinnunni …

Þetta eru sannarlega búnir að vera viðburðaríkir dagar. Við leigðum bústað uppi í Brekkuskógi (þökk sé Leu) og ætluðum að fara þangað strax á föstudaginn. En þegar heim var komið sáu þau að rauðvínskútur sem þau höfði tekið með sér hafði sprungið í annarri feraðtöskunni og rauðvín lag út um allt. Það var því ekkert annað að gera en að fresta brottför í bústaðinn, og nýta þvottavélina til hins ýtrasta. Sýndum þeim Hallgrímskirkju í staðinn, fórum upp í turninn og var það ágætis sárabót.

Svo fékk Hlynur Snær hita aftur og var því ekki alveg í ferðastuði. Mamma kom þá á laugardagsmorgninum og var hjá honum meðan við fórum í bústaðinn. Styttum ferðina töluvert og ætluðum að koma heim á sunnudeginum.

Lögðum snemma af stað og áttum saman reglulega skemmtilegann laugardag. Sýndum þeim Geysi og Gullfoss í blæstri og kulda.

Sunnudagurinn var einnig mikið ævintýri. Það kom alveg brjálað veður og tvísýnt um tíma hvort við kæmumst yfir höfuð heim til Reykjavíkur. Við ákváðum eftir 2 símtöl til Vegagerðarinnar og könnunarferð niður á veg að leggja af stað. Og það var keyrt á 40-50 km hraða fyrsta spölinn. Við komumst heilu og höldnu í bæinn og þau mjög glöð að hafa upplifað smá ævintýri.

Þau voru ekkert smá sátt við að fara í pottinn í bústaðnum … held þau hafi ekki alveg trúað því að það væri pottur við hvern bústað fyrr en við sýndum þeim myndir. Og svo þegar við komum á staðinn.

Nú er stóri dagurinn, síðasti dagur ársins, og við vonumst þess heitt að veðrið verði almennilegt í kvöld og við getum skotið upp kökunum sem ég keypti hjá nr 3 í gær.

Við Staffan fórum svo í Árbæjarlaugina í morgun með börnin á meðan stelpurnar voru heima að gera klárt fyrir kvöldið. Þeim fannst þetta mikið ævintýri að fara út í snjókomuna og skella sér í heita pottinn.

Vil svo í lokin óska öllum sem nenn að lesa þetta gleðilegs árs og vonandi verður árið 2008 eins skemmtilegt og árangursríkt fyrir okkur öll eins og 2007 var.

Gleðilegt ár !

Þær vilja fara berbrjósta í sund.

Valur – Gummersbach í handboltanum í kvöld. Við Gulla ætlum að fara með guttann og afa hans á leikinn. Báðir annálaðir Valsarar :)

Svo er stóri dagurinn á morgun. Við eigum möguleika á Íslandsmeistaratitlinum … og eigum leik gegn HK. Ég var dauðhræddur við leikinn síðasta sunnudag, en Valsmenn sýndu þar styrk sinn og völtuðu yfir FH-ingana innan vallar sem utan. Ég vona bara að menn verði jafn grimmir á morgun.

Næsta helgi verður ekki Vals-helgi, heldur póker helgi. Gulla verður í Sverige, og við strákarnir ætlum að taka smá póker sessin á laugardaginn … verður vonandi gaman, og gróðavænlegt :)

Þegar við vorum á leiðinni út á flugvöll í morgun dó Ópelinn … var að keyra, og hann bara drap á sér. Svavar mágur að tímareimin sé farin (veit samt ekki alveg hvert hún fór).

Ég hafði talað við einhvern hjá Opel á Íslandi og fékk töluna 90-95 þúsund km sem tímareimin ætti að duga. Það er svo svíndýrt að gera við bíla hérna að við ætluðum að láta gera þetta heima á Íslandi. Bíllinn er keyrður rétt um 99.000 km núna. En það átti ekki fyrir okkur að liggja og ég var vægast sagt ekki sáttur við lífið í dag. Eva bjargaði nú helling með að koma með allt dótið sem við vorum með í bílskúrnum þeirra síðan við vorum að sýna húsið.

En á morgun verður maður að taka á því og ganga frá restinni fyrir gáminn sem kemur á miðvikudaginn. Ég fæ bílinn hans Svavars lánaðann og ætla að klára þetta mæð stæl.

Ég kvaddi alla á skrifstofunni hjá Holiday Autos í dag og það var skrítin stund, þó ég komi til með að vera hérna á ferðinni töluvert, ZEUS heldur áfram að vinna fyrir þá á fullu stími.

Það var fullt út úr dyrum nánast í gær af fólki að kveðja Gullu og Hlyn … Hlynur Snær fékk örugglega fleiri pakka í gær en í síðustu afmælisveislu. Grannarnir Veronika, Johan og Adam komu fyrst. Svo komu Svavar og Katarina + börn. Svo mættu Julita og fjölskylda, og svo að lokum bestu vinir okkar hérna, Eva, Staffan og tvíburarnir (Samúel varð eftir heima). Og þau gáfu okkur eiginlega bestu gjöfina. Þau eru búin að bóka flug til Íslands 28. desember og ætla að vera hjá okkur um áramótin. Það verður alveg svakalega gaman að sýna þeim landið okkar og flugeldasýninguna á gamlárskvöld. Ég er þess vegna búinn að leggja inn pöntum á gott veður og vona að þið gerið slíkt hið saman … og kaupið nóg af flugeldum svo þau verði ekki fyrir vonbrigðum.

Gulla fékk afhendann nýja bílinn okkar í dag, sem var nú svolítið kaldhæðnislegt miðað við að Ópelinn ákvað að taka sér hvíld … við keyptum Hondu Accord sem er víst algjör draumakerra … ég er ekkert viss um að ég fái bílinn til baka þegar ég kem heim. Þannig að ef þið sjáið rauða Hondu Accord á götunni, þá gæti það verið Gulla … alveg örugglega ekki ég :(

Jæja … farinn að pakka … komið gott í bili. Skrifa örugglega ekki meira fyrr en ég kem heim til Íslands.

Já …skjótt skipast veður í lofti. Við afhendum húsið hérna í Svíþjóð á fimmtudaginn í næstu viku og ég flýg heim sama dag.

Daginn eftir … þá fáum við Fannafoldina afhenta !!!

Yes … þú last rétt. Einum og hálfum mánuði fyrir umsamda dagsetningu fáum við húsið … við erum ekkert smá sátt við það :)

Jæja … bara að segja frá nokkrum dagsetningum varðandi flutningana … og það verður ekkert talað um leikinn í gær !

Mánudaginn 18. júní fara Gulla og Hlynur Snær heim til Íslands. Vigdís, Davíð og stelpurnar þeirra verða þeim samferða og ég verð einn eftir.

Miðvikudaginn 20. júní kemur gámurinn og ég ætla að fá eitthvað fyrirtæki til að koma og fylla hann fyrir okkur.

Fimmtudaginn 21. júní afhendum við húsið og skrifum undir alla pappíra … og sama dag kem ég heim til Íslands.