— arnigunnar.net

Archive
Svíþjóð

eee … jújú, alveg eins. Bara lítill tími til að skrifa um það … :o

Gulla og Hlynur Snær eyddu næstum tveimur vikum í Skandinavíu, fyrst hjá Andra og Lólý í Kaupmannahöfn og svo yfir til Sviþjóðar til Evu og Staffan.

Andri Freyr Hansson afrekaði það í Tívolíinu að hætta við eitthvað barnatækið og labba út áður en það fór af stað eins og áttræð kelling … ég held ég hefði látið mig hafa það, sama hversu hræddur ég hefði verið.

Á meðan skellti ég mér hins vegar til Portúgal að setja upp bókunarkerfið mitt hjá Eco Viagens, Portúgalskri ferða- og umboðsskrifstofu. Þetta er gríðarlega stórt skref fyrir ZEUS og gaman þegar öll vinnan sem maður hefur lagt á sig undanfarin ár er farin að bera árangur.

Ég tek hins vegar til mín orð viturs manns sem benti mér góðlátlega á að missa ekki sjónar á verkefninu, þó að vel gangi um stundarsakir.

Gulla var um helgina að athuga að gamni sínu fargjöld til Svíþjóðar fyrir hana og Hlyn í sumar. Eva bauð henni að koma í viku meðan hún væri í fríi í lok júní og byrjun júlí.

Iceland Express er hætt að fljúga beint til Stokkhólms og fer bara til Gautaborgar.

Það þýðir að Icelandair situr eitt að kjötkötlunum á þessari leið og það fer sko ekkert á milli mála.

80.000 krónur fyrir Gullu og eitt barn takk fyrir. Á mann! 160.000 fyrir þau bæði. Þetta er bara gjörsamlega óskiljanlegt. Á sama tíma kostar á milli 30 og 40 þúsund fyrir manninn til Köben.

Hvar endar þetta eiginlega … ??

Ég er orðinn viðskiptavinur ríkisins. Hverjum hefði dottið það í hug þegar við fluttum heim frá Svíþjoð fyrir tæplega einu og hálfu ári síðan.

Ég stofnaði fyrirtæki, var gríðarlega bjartsýnn á framtíðina, allt á uppleið alls staðar.

Núna þarf ríkið að kaupa viðskiptabankann minn, lánið sem við tókum fyrir húsinu hefur stórhækkað, á sama tíma og verð hússins hefur lækkað um annað eins. Þeir peningar sem við Gulla höfðum unnið okkur inn þessi rúmlega 11 ár sem við höfum búið saman hafa verið þurrkaðir út á 9 mánuðum.

Svakalegt.

EN … það þýðir ekki að væla, eða vera bitur yfir því sem búið er. Maður verður að reyna að vinna sem bestu út úr þeim spilum sem maður hefur á hendi.

Við höfum ennþá 10 fingur og 10 tær, Hlyni Snæ gengur vel í skólanum og ég get farið að hitta vini mína og spila fótbolta á eftir. Hvað þarf maður meira ??

Með von um batnandi tíð með blóm í haga … :)

Dæmigert … dottnir út í riðlakeppninni. Elsta liðið í keppninni, Kim Källström fékk næstum ekkert að spila, Zlatan á hálfum hraða, Henke Larsson orðinn gamall og hinir “meðaljónarnir” eins og Pétur Marteinsson orðaði það gátu ekki neitt.

Þá verður maður bara að halda með Hollandi … ég tippaði á þá sem sigurvegara fyrir mót, og eftir þessa ótrúlegu byrjun, þá eru þeir líklegir.

En útsláttarkeppnin er óútreiknanleg og nú fara leikirnir að verða verulega spennandi.

Sá eitt komment frá fyrrverandi vinnufélaga á Facebook áðan sem lýsir Svíunum alveg fullkomlega. Það hljómaði einhvern veginn svona: “Við hefðum hvort eð er tapað fyrir Hollandi”.

Það er alveg merkilegt hvað þeir hafa mikla minnimáttarkennd þegar þeir tapa, en eru montnastir í heimi ef þeir vinna …

Jæja … þá er maður kominn til Sverige á ný. Tók að sjálfsögðu tölvuna með og tengdi 3G módemið hans Staffan við tölvuna og tengist netinu þannig. Alveg svaka kúl.

Fór með Gullu í smá göngutúr þegar ég kom, gaman að ganga um gamla hverfið.

Kíktum á gamla húsið og svona … mjög gaman. Förum að borða hjá Therese og Erik í kvöld, þau ætla einmitt að koma til okkar í sumar.

Eva heldur svo upp á afmælið sitt á laugardaginn … það er búið að vara mig við að það verði partíað fram eftir nóttu … veit ekki alveg hvernig það verður :o

Það er verið að endursýna Ísland – Svíþjóð á EM í sjónvarpinu núna. Leikurinn var að byrja. Það eru núna næstum 3 tímar síðan leik lauk og ég er ennþá svekktur. Við spiluðum eins og höfuðlaus her í fyrri hálfleik og ég var þess fullviss um að þetta færi að detta hjá okkur í seinni. Alveg handviss.

En það varð ekki … ástandið bara versnaði ef eitthvað var.

Og ég barði svo oft í sófann að það hálfa væri nóg.

En það þýðir víst ekkert að væla yfir þessu, bara rífa sig upp fyrir laugardaginn og taka leikina sem við eigum um helgina. Það góða við þetta er jú að við getum nú varla spilað mikið verr sóknarlega en við gerðum í dag.

Annars var ég að dúndra inn nokkrum myndum áðan inn á Flickr síðuna. Jólamyndir og fleira. Mamma ætti að vera sátt við það.

Hlynur Snær í Almannagjá

Svo er kjálkinn bara allur að koma til. Er farinn að geta tuggið svona einfaldann mat, en það er vont ef ég þarf að bíta fast í eitthvað. Vona bara að þetta leggist á sinn stað þegar bólgan er alveg farin.

Fótboltafélagarnir reyndu eitthvað aðeins að bæta fyrir þetta og settu boltann tvisvar í andlitið á Gumma á þriðjudagskvöldið … en hann á eftir að fá eitt almennilegt frá mér :)