— arnigunnar.net

Archive
Stjórnmál

Stuttu eftir að ég stofnaði lita fyrirtækið mitt, ZEUS web works, var ég að keyra út nýja útgáfu af vef fyrir einn viðskiptavin okkar.

Þróunin hafði gengið vel og þetta átti ekki að vera mikið mál að skipta út gamla vefnum og setja þann nýja í staðinn.

Ég færi allar skrárnar yfir á vefþjóninn sem hýsir vefinn, en gleymi að breyta tengiskrám sem segja vefnum að tengjast við réttann gagnagrunn.

Að venju gerði ég þetta seint um kvöld eða snemma nætur, sem er i sjálfu sér engin afsökun, en það er best að gera svona hluti þegar minnst umferð er á vefsvæðinu.

Þessi risa mistök mín komast ekki upp fyrr en eftir hádegi daginn eftir þegar við tökum eftir því að engin gögn eru að vistast í gagnagrunninum.

Þessi mistök mín kölluðu á auka vinnu fyrir fullt af fólki innan fyrirtækisins, eitthvað sem hefði verið hægt að koma í veg fyrir, og átti ekki að gerast.

Og hvað gerði ég þá? Varpaði ábyrgðinni á aðra? Teygði lopann og talaði í hringi?

Nei. Ég sendi tölvupóst á alla þá sem urðu fyrir þessu, og baðst afsökunar. Tók ábyrgð, og lofaði að læra af þessum mistökum.

Ég hélt viðskiptavininum, þeir voru ánægðir með afsökunarbeiðnina og við lærðum af þessu.

Og nú spyr ég:

Af hverju geta stjórnmálamenn og embættismenn ekki gert slíkt hið sama ???

… en ekki lengur.

Mér fannst hann vera að gera góða hluti, n.b. eftir að hann hætti í pólitík. Sá viðtal við hann í Kastljósinu áðan, og mæ god, þvílík steypa sem kemur frá manninum …

Ég tók saman öll netföng núverandi þingmanna okkar. Bjarni Harðar er reyndar ennþá á listanum, althingi.is er ekki alveg fljótasti vefurinn að uppfæra sig.

Þennan lista getið þið notað til að senda þingmönnum tölvupóst um hvað það sem ykkur liggur á hjarta … og það er væntanlega töluvert þessa dagana.

arnbjorg@althingi.is, atlig@althingi.is, aoa@althingi.is, alfheiduri@althingi.is, armannkr@althingi.is, arnipall@althingi.is, arnij@althingi.is, amm@althingi.is, arnithor@althingi.is, arj@althingi.is, astamoller@althingi.is, birgir@althingi.is, birkir@althingi.is, bjarniben@althingi.is, bjarnih@althingi.is, bgs@althingi.is, bjorkg@althingi.is, bjb@althingi.is, einarg@althingi.is, ems@althingi.is, ellertsch@althingi.is, geir@althingi.is, gretarjons@althingi.is, gudbjarturh@althingi.is, gsb@althingi.is, gak@althingi.is, gudlaugurthor@althingi.is, gudni@althingi.is, gunnars@althingi.is, helgih@althingi.is, herdisth@althingi.is, hoskuldurth@althingi.is, illugig@althingi.is, isg@althingi.is, johanna@althingi.is, jb@althingi.is, jong@althingi.is, jonm@althingi.is, kvm@althingi.is, katrinja@althingi.is, katrinj@althingi.is, ko@althingi.is, kolbrunh@althingi.is, khg@althingi.is, kristjanj@althingi.is, klm@althingi.is, ludvik@althingi.is, ms@althingi.is, olofn@althingi.is, petur@althingi.is, rea@althingi.is, ragnheidurr@althingi.is, skk@althingi.is, siv@althingi.is, sjs@althingi.is, svo@althingi.is, sturla@althingi.is, valgsv@althingi.is, thkg@althingi.is, tsv@althingi.is, thback@althingi.is, ogmundur@althingi.is, ossur@althingi.is.

05

Ég rakst á þessar myndir af Barack Obama á netinu í morgun. Callie Shell, ljósmyndari hjá Timem tímaritinu, heufur fylgst með honum í fjögur ár, alveg frá síðustu kosningum.

Myndirnar eru aðallega teknar á því tímabili þegar hann var að berjast við Hillary Clinton um útnefningu Demókrataflokksins til forseta Bandaríkjanna.

Maður getur eiginlega ekki gert sér grein fyrir hversu miklu sigur Obama skiptir fyrir Bandaríkin, og þá sérstaklega svarta íbúa þess. Nú hafa þeir einhvern til að líta upp til. Það er þarna mynd af tveimur ungum svörtum drengjum sem mættu á fund hjá 03 Barack Obama. Þeir fengu að hitta hann og tóku ekki augun af honum allann tímann. Þessi mynd fangar það augnablik algerlega. Alveg stórkostleg mynd.

Ég held að kjör hans sem forseta eigi eftir að breyta miklu í Bandaríkjunum, og heiminum öllum ef út í það er farið.

Hann er alveg ótrúlega einlægur og kraftmikill ræðumaður. Ég man ennþá þegar hann steig fram á sjónarsviðið fyrir fjórum árum síðan á þingi Demókrata. Þá var verið að tilnefna John Kerry sem forsetaframbjóðanda þeirra gegn George W. Bush. Eftir ræðu hans þar, var talað um að fram væri kominn ný stjarna á sviðið, sumir gengu jafnvel svo langt að segja að hann ætti möguleika á að verða forseti Bandaríkjanna.

Sem betur fer höfðu þeir rétt fyrir sér.

Ég hef ekki séð einn einasta pólitíkus, embættismann, útrásarvíking eða aðra almenna borgara standa upp og segja skýrt og greinilega: “Ég gerði mistök”.

Og ég skil ekki hvers vegna. Fólk keppist um að flytja sökina yfir á aðra, reyna að gera sem minnst út úr sínum eigin mistökum. Davíð segir að þetta sé útlendingunum að kenna, Jón Ásgeir segir að þetta sé útlendingunum að kenna. Stjórnarandstaðan eins og hún leggur sig segir að þetta sé stjórninni að kenna. Ríkisstjórnin segir að þetta sé mestann partinn innfluttur vandi.

Svo eru fylgismenn þessarra hópa í bloggheimum að hnakkrífast um þessar skoðanir allar saman. Og það á alltaf að finna einn sökudólk. Einn Davíð. Einn Gordon Brown. Einn Geir. Einn Jón Ásgeir. Einn George W. Bush. En þó eru sumir sem vilja hengja eins og eitt par Björgólfsfeðga.

En galdurinn er jú að það er enginn einn sökudólgur. Þetta er svo stórt sambland af svo mörgum þáttum að venjulegt fólk getur ekki tengt þetta allt saman. Ég get það ekki, og ég tel mig nú vera meðalgreindann karlmann á besta aldri, meira að segja nýbúinn að eiga afmæli.

Og vegna þess að sökudólgarnir eru svo margir, vill enginn fara upp á hólinn og viðurkenna mistök sín. Halda að þeir geti komist upp með aðgerðir sínar (og í sumum tilfellum aðgerðarleysi). Gungur allar saman segi ég.

Til þess að geta haldið áfram, þurfa menn að viðurkenna mistök, axla ábyrgð.

Ég ætla að byrja: Ég tók þátt í vitleysunni. Við keyptum raðhús og 2 bíla þegar við fluttum heim til Íslands fyrir tvemur og hálfu ári síðan. Héldum að ævintýrið myndi halda áfram endalaust. Svo springur allt í loft upp. Sem betur fer erum við á góðum stað í lífinu og þurfum ekkert að færa okkur úr stað. Okkar áætlun var að flytja aldrei aftur, og því skiptir það okkur ekkert öllu máli þó lánin á húsinu hækki. Það er bara erfiðara að standa í skilum um hver mánaðarmót.

Við bara tökum þennann slag sem framundan er, höldum áfram okkar lífi með bros á vör og bíðum eftir að vorið komi með blóm í haga.

Ég bjó í Svíþjóð í tvö og hálft ár, frá 2005 til 2007. Þar áttum við lítið, sætt og dæmigert sænskt raðhús í úthverfi Stokkhólms. Þar tókum við lán fyrir um 70% af verðgildi hússins. Þar borguðum við um 2.5% vexti þegar þeir voru sem lægstir. Óverðtryggt. Verðgildi hússins hækkaði töluvert þessi rúmlega tvö ár, en ekki lánið okkar.

Yfirvöld hafa gefið það út að öllum fasteignalánum frá viðskiptabönkunum. Hverju og einu einasta.

Hvernig væri þá að nota tækifærið, setja lög sem heimila Íbúðalánasjóði að búa til ný lán sem hafa enga verðtryggingu? Við lifum á þvílíkum tímum þessa daga og vikur og þurfum á öllum okkar kröftum að halda til að standa undir okkar skuldbindingum. Skuldbreyta bara öllu klabbinu á einu bretti.

Ef einhvertímann er tækifæri til að fara í þessa réttlátu aðgerð, þá er það núna.

Ef verðbólgan heldur áfram á þessum hraða, á fullt, fullt af fólki að verða gjaldþrota og missa húsin sín.

Ef hægt er að frysta gjaldeyrislánin, þá ætti þetta að vera hægt. Þá er engin pressa lengur að taka myntkörfulán …

Er þetta hægt, eða er ég að missa af einhverju ?