— arnigunnar.net

Archive
Stjórnmál

Ég tók þátt í rafræinni kosningu Eyjunnar áðan … ekki það að IceSave brenni eitthvað sérstaklega á mér, heldur vildi ég taka þátt þannig að þetta verði vænlegur kostur í framtíðinni.

Það var ekkert smá auðvelt að kjósa. Góðar leiðbeiningar á kosningasíðunni, fór bara í heimabankann þar sem beið mín netyfirlit, skráði mig inn í ÍslendingaVal og kaus. Dead-simple.

Hvet alla til að taka þátt hið minnsta, því þá er hægt að pressa þessa stjórnmálahálfvita í að skoða þetta sem vænlegan kost í framtíðinni.

Væri miklu frekar til í að taka þátt í umræðu, ef ég gæti tekið svona beinan þátt í því sem verið er að ákveða.

Reykjavíkurborg var eitthvað að daðra við þetta, en þar gat ég bara forgangsraðað einhverjum leikvöllum vs hringtorgum, ekki alveg það sem ég vildi …

Ég er með tillögu sem ég lagði fram á óformlegum spjallfundi eftir bumbubolta um daginn …

Hækkum tekjuskattinn um 5% til að afla ríkinu tekna í þessu hræðilega áferði sem er í dag.

Í staðinn fæ ég hlut í bönkunum miðað við það sem ég greiði í skatt. Ef ég greiði 1.000.000 í skatt og einhver annar 500.000, þá vinn ég mér inn tvöfalt stærri hlut í eignarhaldsfélagi sem fer með hlut ríkisins í bönkunum (og jafnvel þeim fyrirtækjum sem ríkið þarf að taka yfir v/ skulda).

Svo þegar við erum komin á betri kjöl, þá er þetta eignarhaldsfyrirtæki sett á almennan markað og ég get þá selt minn hlut, nú eða haldið honum ef ég vil.

Sem sagt, borga hærri skatt, fá eignir á móti … þá er ég miklu viljugri til að borga skattinn í dag ef ég veit að ég er að eignast eitthvað í staðinn.

Mig dreymdi draum í nótt. Hrikalega skrýtinn draum. Davíð Oddsson seðlabankastjóri var að sýna mér skýrslusafn Landsspítalans sem geymt er langt í iðrum jarðar undir spítalanum við Hringbraut.

Ég man ekki af hverju við vorum að þvælast þarna, en hann sýndi mér sjúkraskýrslur ýmissa frægra og ófrægra manna og kvenna. Páll Óskar, Einar Ben, Steingrímur Hermannsson og fleiri góða fékk ég að sjá, en svo var hann með leynikassa sem ég mátti alls ekki kíkja ofaní …

Þýðir þetta eitthvað ??

Flestir vilja afnema verðtrygginguna. Stjórnmálamenn segja að það sé ekki hægt. Bara alls ekki.

Ég var að hugsa um þetta á leiðinni heim eftir að hafa gengið með syni mínum í skólann í morgun að það er kannski einn möguleiki í stöðunni.

Ef við höfum þessa greiðslujöfnunarleið og nýtum okkur hana, væri sniðugt að ríkið myndi segja sem svo að ef þú lendir í því að húsið þitt sé yfirverðsett, þá eru lán niður í 90% veðsetningu miðað við söluverð afskrifuð. Þannig myndum við alltaf eiga 10% í húsum og íbúðum okkar hið minnsta. Þetta er ekki kostnaður sem kæmi á ríkið í einni holskeflu, heldur yfir langt tímabil og því auðveldara að eiga við hann.

Þetta myndi jafnvel fá fólk til að vera áfram á þessu landi og halda áfram. Gefa því einhverja von og eitthvað að stefna á. Þá er það ekki bundið í húsi sínu án þess að geta selt.

Mér þykir þetta vera einföld og réttlát leið. Það er auðvelt að setja reglur um þetta, aðeins má gera þetta einu sinni, lánin verða að vera tekin fyrir desember 2008, viðkomandi verður að vera í skilum, ekki má selja fjölskyldumeðlimi o.s.frv.

Afnemum svo verðtrygginguna þegar við erum komin með alvöru gjaldmiðil.

Jahérna … sumir eru klókari í hausnum en aðrir. Ég skrifaði færslu um okkar ástkæra Ástþór Magnússon og nýju síðuna hans um Lýðveldið. Ég sá nefnilega strax að útlit síðunnar var nákvæmlega eins og útlit sem Sitefinity notar á sýnivef sinn.

Hversu hallærislegt sem manni kann að finnast það að nota þetta útlit, þá má hann nota það að vild, svo fremi sem að útgáfa hugbúnaðarins sé í lagi og leyfisgjöld greidd.

Ég kallaði hann víst nafni sem hann var ekkert sérstaklega sáttur við. Ég fékk fyrsta póstinn frá honum í gærkvöldi, þar sem hann útskýrði málið, þá setti ég athugasemd við færsluna, en það er víst ekki nóg að mati Ástþórs okkar. Ef ég tæki ekki út færsluna fyrir 15:00 í dag, þá yrði mér stefnt fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur.

Þabarrasonna …. drama í gangi :)

Ég er alveg maður í að segja sorry ef ég hef gert eitthvað rangt, það er flestum sem mig þekkja ljóst. Í þessu tilfelli hafði ég ekki rétt fyrir mér og bað blessaðann manninn afsökunar.

Ég hef því tekið viðkomandi bloggfærslu úr birtingu, en ef þið viljið lesa það sem ég skrifaði, þá er hægt að sjá afrit af færslunni á vefþjónum Google, ég get því miður ekki eytt þeirri færslu líka. Viðskiptaráðherrann okkar, hann Björgvin ætti nú að vita það.

Er þetta virkilega besta leiðin til að nýta tímann okkar í á dögum sem þessum ?