Ég grét, þakklátur fyrir að vera hluti af stórasta landi í heimi !!
Snilld !!
Þetta var bara æðislegt áðan … að taka Þjóðverjana í bakaríið á ÓL í Peking. Það voru allir að standa sig og nú tökum við sem þjóð massívt bjartsýniskast med det samme …
Nú er það bara ÓL titillinn sem blívur, ekkert minna. Yeah ræt …
Annars höfum við það bara gott, Hlynur Snær varð 6 ára í gær og Dagur Freyr hefði orðið 7 ára síðastliðinn sunnudag.
Það var mikið um dýrðir í afmæli þess stutta, hann var alveg svakalega ánægður með allar gjafirnar, og fékk heilar 5 afmælisveislur á 2 dögum, hvorki meira né minna. Fyrst á sunnudaginn í Kringlunni með vinum og jafnöldrum, svo heima um kvöldið með fjölskyldunni. Í gær var svo smá veisla á Vinaminni og svo komu Magga og Pétur í afganga í gærkvöldi, og gáfu honum pakka. Það var tekið gilt sem heil afmælisveisla. Svo hringdi Dúfa frænka og söng fyrir hann afmælissönginn, og það var heil afmælisveisla líka :)
Á sunnudaginn fórum við upp í kirkjugarð með 6 rauðar rósir til að setja á leiðið hjá Degi. Það komust bara 5 fyrir í blómapottinum, og Hlynur fékk að eiga eina sjálfur. Hann var nú ekki á því að eiga hana lengi, því við komum við hjá Sverri og Gretu þar sem hann gaf Elísu dóttur þeirra (6 ára) rósina sem hann átti. Talaði svo ekki um annað á leiðinni heim en hvað hann væri ástfanginn. “Mamma, ég er svo ástfanginn, sjáðu bara hvað ég brosi breitt,” sagði hann.
Ég var svo að setja inn nokkrar nýjar myndir á Flickr síðuna …
Alltaf finnst mér jafn sárt þegar maður heyrir eitthvað svona … þessi frábæri bakvörður Hollendinga missti dóttur sína í gær, fæddist fyrir tímann. Maður kannast víst við það …
En hann er kominn aftur til félaga sinna í Hollenska landsliðinu, ætlar að klára mótið með þeim. Flott hjá honum.
Dæmigert … dottnir út í riðlakeppninni. Elsta liðið í keppninni, Kim Källström fékk næstum ekkert að spila, Zlatan á hálfum hraða, Henke Larsson orðinn gamall og hinir “meðaljónarnir” eins og Pétur Marteinsson orðaði það gátu ekki neitt.
Þá verður maður bara að halda með Hollandi … ég tippaði á þá sem sigurvegara fyrir mót, og eftir þessa ótrúlegu byrjun, þá eru þeir líklegir.
En útsláttarkeppnin er óútreiknanleg og nú fara leikirnir að verða verulega spennandi.
Sá eitt komment frá fyrrverandi vinnufélaga á Facebook áðan sem lýsir Svíunum alveg fullkomlega. Það hljómaði einhvern veginn svona: “Við hefðum hvort eð er tapað fyrir Hollandi”.
Það er alveg merkilegt hvað þeir hafa mikla minnimáttarkennd þegar þeir tapa, en eru montnastir í heimi ef þeir vinna …
