— arnigunnar.net

Archive
Íþróttir

Ég er ekki alveg að skilja þetta … gerður fjögurra ára samningur á síðasta ári, og svo bara kallinn hættur, án skýringa.

Mér finnst furðulegt að menn sem stjórna svona almenningsíþróttafélagi skuli geta gert svona án skýringa. Það er eins og stjórnir deildanna geti bara gert það sem þeim sýnist og engar skýringar gefið nema á aðalfundum einu sinni á ári.

Við félagsmenn í Val eigum heimtingu á skýringum og ástæðum þess að Willum er ekki þjálfarinn okkar lengur.

Boston Globe er oft með massa flottar myndasýningar á vefnum hjá sér. Núna voru þeir að birta myndir frá Suður Afríku, þar sem Álfukeppnin í fótbolta fer fram þessa dagana.

Við strákarnir förum á næsta ári á alvöru keppnina, HM. Við fengum miða á leik í 16 líða úrslitum í Cape Town þann 29. júní 2010.

Þessi mynd hér fyrir neðan er ein myndanna í þessari seríu … þær eru hver annarri flottari

- Skoða allar myndirnar

Barcelona sigraði Manchester United í kvöld og varð þar með Evrópumeistari. Í þættinum sem á eftir kom, átti Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, frábæra samantekt á því af hverju Barcelona vann (næstu því orðrétt): “Það er mín skoðun að fleiri lykilleikmenn Barcelona áttu betri leik en lykilleikmenn United.”

Og þá kinkaði ljóskan við hliðina á honum kolli: “Ég er sammála”.

Ég held það sé varla hægt að sigra leik öðruvísi en að þínir lykilleikmenn séu betri en hinir … en hvað veit ég svo sem …

Hlynur Snær fékk að vaka lengur og horfa á leikinn … hann var eitthvað að skoða fótboltaspilin sín þegar Messi skoraði seinna mark Barcelona. Við Gulla fögnuðum helling, en það var eins og hann fattaði ekki neitt … var alveg í sínum heimi með spilin sín. Ég sagði við hann að Messi hefði skorað, og hann rétt leit upp og sagði: “Ég veit”. Og hélt áfram að skoða silfur Torres spilið sem hann fékk í dag.

Ég gekk frá umsókn fyrir okkur strákana um miða á 2 leiki á HM í Suður Afríku sem fram fer á næsta ári.

Við sóttum um leik í riðlakeppninni sem fram fer 21. júní og leik í 16 liða úrslitum 29. júní. Verðum þarna sem sagt í 10 daga ef við fáum miða þ.e.a.s.

Við fórum saman á HM í Þýskalandi 2006 og ákváðum þá að fara á næsta HM, hvar sem það yrði.

Sumir okkar eru forsjálir og eru búnir að vera að leggja fyrir pening í hverjum mánuði í dáldinn tíma, en sumir ekki alveg jafn forsjálir …

Þegar við vorum í Þýskalandi fengum við Arnar næstum því til að stökkva út í höfnina einn daginn … verðum helst að fá hann til að stökkva í einhverja höfnina í  Suður Afríku á næsta ári til að uppfylla draumin hans, hann er ennþá svekktur yfir að hafa ekki látið sig vaða.

Og eins og öllum tækninördum sæmir, þá eigum við að sjálfsögðu myndband af umræddu atviki í Hamborg fyrir þremur árum síðan og því var auðvitað bætt við flóru myndbanda á Google Video. Hægt er að skoða myndbandið hér fyrir neðan

Yfirleitt læt ég boltann ekki pirra mig, en þetta fer bara alveg að verða komið gott af þessum Spánverja sem þykist vera að stjórna þessu skipi. Stjóri sem ætlar að treysta á einn framherja í titilbaráttu, framherja sem er búinn að vera meiddur hálft tímabilið þarf að láta skoða á sér hausinn.

Já …. selja Keane … góð hugmynd. Hann hefur reyndar ekki verið neitt sérstakur, en er maður með reynslu og var að skásnast þangað til honum var kippt út úr liðinu. Og þegar Torres meiðist, þá hefur Liverpool engan framherja. Engann. Góð hugmynd Benitez.

Maður sem hefur keypt 51 leikmann á 190 milljónir punda síðan hann tók við árið 2004 ætti að hafa meiri dýpt og betri hóp í höndunum, það er alveg á hreinu.

Og svo …. hrikalega dapurt tap í kvöld gegn Everton. Ég held ég sé búinn að sjá alla leiki Liverpool á þessu ári, og allir með tölu hafa verið hundslappir að frátöldum Chelsea leiknum.

Liverpool átti 5 skot á markið í kvöld í 120 mínútna leik. Það er skot á 24 mínútna fresti. 24 mínútur á milli skota á markið, alveg ótrúlegt.

Einkunnir fyrir leikinn gegn Everton 5. febrúar 2008

Pepe Reina: 6
Þokkalega traustur að venju, átti eina frábæra tvöfalda vörslu í seinni hálfleik.

Andrea Dossena: 0
Gat ekki blautann skít …. átti eina fyrirgjöf í leiknum sem gerði eitthvað, annars arfaslakur að venju.

Jamie Carragher: 5
Traustur, á ennþá erfitt með að koma boltanum frá sér.

Martin Skrtel: 8
Líst betur og betur á þennan, kraftmikill og er alltaf að verða betri í að senda boltann. Ef hann nær sendingargetu Daniel Agger, verður þetta okkar besti varnarmaður innan tíðar.

Álvaro Arbeloa: 2
Hundlélegur að venju, var mikið fyrir framan miðjulínuna, en kom lítið sem ekkert út úr því.

Xabi Alonso: 4
Furðu slappur í dag, búinn að vera mistækur allt tímabilið.

Steven Gerrard: 3
Gerði lítið þangað til hann fór útaf vegna meiðsla.

Lucas: 0
Heimskur, heimskari, heimskastur. Fékk á sig heimskulegt víti í síðasta leik og lét reka sig útaf í kvöld. Ótrúlega heimskulegt.

Alberto Riera: 0
Getur ekki tekið menn á, er ekki snöggur, ekki kraftmikill, varla skothæfur …. veit ekki alveg hvað hann er að gera í liðinu.

Dirk Kuyt: 0
Hlaupandi Duracell kanína sem veit ekki hvorum megin á vellinum hún á að vera.

Fernando Torres: 3
Hann átti ekki séns í Jagielka í kvöld. Svo einfalt er það. Lét Everton manninn ýta sér frá öllum boltum.

Yossi Benayoun: 2
Hrikalega slappur. Hef haft óbeit á þessum leikmanni síðan hann kom, hann var aðeins að koma til, en í kvöld sáum við hinn eina sanna Benayoun, leikmanninn sem kann ekki að spila fótbolta.

Aaaargh …. er of seint að byrja að halda með …. hmmm …. hvað ætti ég að velja …. Leeds kannski ?

Mér datt þetta í hug þegar ég var að renna yfir fótboltafréttirnar í morgun. Tottenham sekkur eins og Titanic, því þeir hafa ekki byrjað eins illa síðan árið 1912, sama ár og Titanic sökk.

En hvað er svona líkt? Jú. Bæði Juande Ramos og Geir H. Haarde virðast bjargarlausir, koma ekki fram með neinar lausnir. Þeir blaðra fullt, en það kemur ekkert út úr því. Liðin þeirra eru að spila handónýta taktík og leikmennirnir vita ekkert í hvort fótinn á að stíga. Óvissan er algjör. Hvað gerist næst? Hvaða taktík spilum við um næstu helgi? Verður þjálfarinn okkar á sínum stað á morgun?

Og hvað eru stuðningsmenn Tottenham að fara fram á núna? Jú, að reka hinn spánska Ramos. Ekki seinna en strax. En hann, eins og Geir, þráast við og segist ekkert fararsnið vera á sér.