Prúðuleikararnir eru bara æði …
Ég bara eiginlega veit það ekki … það er orðið ansi langt á milli uppfærslna hérna, og ég er ekkert viss um að það sé nokkuð að breytast í nánustu framtíð.
Maður er á Feisbúkk, Twitter og Flickr … uppfærslur þangað ættu nú að nægja. Svo þegar maður býr svona nálægt öllum þá hverfur þörfin fyrir að tjá sig hérna til að segja frá hvað er að gerast í Fannafoldinni.
Svo nenni ég ekki að skrifa um bankahrun eða æsseiv … er alveg fullsaddur af þeim umræðum öllum saman.
Og hvað á maður þá að skrifa um ? Það er stóra spurningin ….
Er virkilega til fólk í heiminum sem vill vera stjórnmálamenn af fúsum og frjálsum vilja … I don’t get it …
eee … jújú, alveg eins. Bara lítill tími til að skrifa um það … :o
Gulla og Hlynur Snær eyddu næstum tveimur vikum í Skandinavíu, fyrst hjá Andra og Lólý í Kaupmannahöfn og svo yfir til Sviþjóðar til Evu og Staffan.
Andri Freyr Hansson afrekaði það í Tívolíinu að hætta við eitthvað barnatækið og labba út áður en það fór af stað eins og áttræð kelling … ég held ég hefði látið mig hafa það, sama hversu hræddur ég hefði verið.
Á meðan skellti ég mér hins vegar til Portúgal að setja upp bókunarkerfið mitt hjá Eco Viagens, Portúgalskri ferða- og umboðsskrifstofu. Þetta er gríðarlega stórt skref fyrir ZEUS og gaman þegar öll vinnan sem maður hefur lagt á sig undanfarin ár er farin að bera árangur.
Ég tek hins vegar til mín orð viturs manns sem benti mér góðlátlega á að missa ekki sjónar á verkefninu, þó að vel gangi um stundarsakir.
Ég er ekki alveg að skilja þetta … gerður fjögurra ára samningur á síðasta ári, og svo bara kallinn hættur, án skýringa.
Mér finnst furðulegt að menn sem stjórna svona almenningsíþróttafélagi skuli geta gert svona án skýringa. Það er eins og stjórnir deildanna geti bara gert það sem þeim sýnist og engar skýringar gefið nema á aðalfundum einu sinni á ári.
Við félagsmenn í Val eigum heimtingu á skýringum og ástæðum þess að Willum er ekki þjálfarinn okkar lengur.
Ég er með tillögu sem ég lagði fram á óformlegum spjallfundi eftir bumbubolta um daginn …
Hækkum tekjuskattinn um 5% til að afla ríkinu tekna í þessu hræðilega áferði sem er í dag.
Í staðinn fæ ég hlut í bönkunum miðað við það sem ég greiði í skatt. Ef ég greiði 1.000.000 í skatt og einhver annar 500.000, þá vinn ég mér inn tvöfalt stærri hlut í eignarhaldsfélagi sem fer með hlut ríkisins í bönkunum (og jafnvel þeim fyrirtækjum sem ríkið þarf að taka yfir v/ skulda).
Svo þegar við erum komin á betri kjöl, þá er þetta eignarhaldsfyrirtæki sett á almennan markað og ég get þá selt minn hlut, nú eða haldið honum ef ég vil.
Sem sagt, borga hærri skatt, fá eignir á móti … þá er ég miklu viljugri til að borga skattinn í dag ef ég veit að ég er að eignast eitthvað í staðinn.