* You are viewing the archive for the ‘Vefurinn’ Category



Randy Pausch, R.I.P.

Sá sem flutti “the last lecture” sem ég skrifaði um fyrir nokkru síðan, lést í dag. Ég keypti bókina sem hann skrifaði líka og hafði mikið gagn og gaman af.

Megi hann hvíla í friði …

Snilldarfærsla um þakklæti og jákvæðni

Jón Axel Ólafsson er einn af þeim bloggurum sem ég les reglulega. Hann skrifar í dag um þakklæti og mikilvægi þess að horfa á jákvæðu hlutina í lífinu í stað þess að einblína á það neikvæða. Lesið og njótið.

Það er víst betra að borga reikningana sína

Já … ég komst að því (svo og allir sem reyndu að fara inn á vefinn um helgina) að það er betra að borga reikningana sína á réttum tíma. Ég hafði víst gleymt að borga elsku Bandaríkjamönnunum sem eru svo góðir að geyma vefinn minn á tölvunum sínum. Og þeir bara tóku mig úr sambandi :( En ég var snöggur til og borgaði þeim það sem upp var sett og nú ætti allt að vera í lagi. Vonandi að ég hafi ekki eyðilagt helgina fyrir einhverjum …

Sumarið kom með sprengju hérna um helgina, líkt og á Íslandi. 20-25 stiga hiti og glampandi sól alla helgina, og á að vera alla vikuna og fram á næstu helgi. Og þessi sumarsprengja var … Lesa alla færsluna

Smá meira efni :)

Ég hef verið að dunda mér yfir helgina að flytja yfir gamlar dagbókarfærslur. Áður en ég setti síðasta vef í loftið var ég að nota mitt eigið kerfi fyrir dagbækurnar og rakst fyrir slysni á þær allar hérna á tölvunni minni. Ákvað að skella þeim inn. Þetta eru færslur frá október 2001 og til ágúst 2004, en þá setti ég í loftið vef sem var vistaður niðri í Innn.

Stuttu eftir að ég hætti þar í febrúar í fyrra hvarf allt í einu gagnagrunnurinn af þeirri síðu og allar færslur frá ágúst 2004 til júní 2005 eru horfnar að eilífu. Hef aldrei komist til botns í því hvað gerðist hjá þeim … það hefur allavega enginn viljað viðurkenna að hafa eytt … Lesa alla færsluna

Nýtt kerfi, sami vefurinn

Halló allir.

Í dag tek ég í notkun nýtt kerfi fyrir bloggið mitt. Ég er hættur að finna upp hjólið og smíða þetta sjálfur, hef nóg annað að gera. Frítt PHP kerfi sem heitir WordPress varð fyrir valinu og hef ég flutt öll blogg og komment sem ég var með úr mínu “kerfi” í þetta (og það var miklu meiri vinna en ég bjóst við).

Þetta kerfi býður líka upp á að frúin á heimilinu geti bloggað á auðveldann hátt … þannig að það er aldrei að vita nema hún taki sig til og skrifi smá líka :)

Með þessu kerfi er hægt að búa til myndagallerí úr myndum sem eru hostaðar hjá Flickr, og mun ég … Lesa alla færsluna

Smá update

Fyrst má telja að ég setti inn nokkrar myndir á Flickr síðuna mína. Ég ætla að breyta aðeins albúmakerfinu mínu hérna og nota myndirnar þaðan. Það er hins vegar ekki komið í gagnið, þannig að linkur yfir á nýju myndirnar verður að duga í bili. Ég stefni á að setja inn nýjar myndir þarna í hverjum mánuði (yeah right …)

Sumarfríið er farið að taka á sig mynd. Í júní fer ég að sjálfsögðu til Þýskalands með strákunum. Ég hlakka mikið til að hitta þá eftir langa fjarveru frá Íslandi. Við verðum í Hamborg í 3 daga saman og sjáum einn leik á HM. Í lok júlí ætlum við svo að fara viku til Spánar. Lea fékk hús leigt þar … Lesa alla færsluna

Veikindi, Lólý, Robbie Fowler og fleira

Ég var veikur í næstum heila viku. Það hefur ekki gerst svoooo lengi. Á föstudaginn fyrir rúmlega viku var Pétur yfirmaður minn og nágranni á skrifstofunni með þetta líka massa kvef. Í gríni sagði ég við hann að ég myndi örugglega ekki mæta á mánudeginum, ég yrði veikur. Og viti menn … sú spá rættist og gott betur. Þriðjudag, miðvikudag, fimmtudag og föstudag var ég alveg í tjóni. Ég reyndi að vinna soldið heima bæði fimmtudag og föstudag, en það varð nú ekkert rosalega mikið úr því, þannig séð.

Ég bara man ekki eftir neinu atviki þar sem ég hef verið veikur svona lengi. Yfirleitt hef ég verið hraustur og veikst lítið. Og í þau fáu skipti sem ég fæ einhverja … Lesa alla færsluna

Jólamyndirnar komnar

Var að setja inn nokkrar jólamyndir. Smellið á myndir, fjölskyldumyndir og jólamyndir. Enjoy!

Var að bæta við nokkrum myndum

Ég var að bæta við nokkrum myndum í myndaalbúmið. Smellið á myndir, veljið flokkinn Hlynur Snær og þar eru nýjar myndir af honum sem teknar voru í haust við hin ýmsu tilefni.

Komin önnur færsla, og smá uppfærsla

Annars er allt gott af okkur að frétta. Gulla, Hlynur Snær og tengdamamma eru gjörsamlega að stikna úr hita hérna heima á daginn. Það fer upp í ca 25 gráður og það er bara helvíti heitt skal ég segja ykkur.

Hlynur sefur bara í nærbuxum og með bleijuna sína, honum er svo heitt. Hann er samt alveg að fíla sig í þessu … fær bara nógann ís að borða og er þá voða kátur. Ég held að maðurinn í ísbílnum sé farinn að þekkja Gullu, hún er alltaf að kaupa ís. Ég held að Hlynur sé með óvenju þroskað málbein … hann bara hættir ekki að tala. Hann talar og talar allann daginn. Það er eins og hann sé að vinna … Lesa alla færsluna