Í: Allt annað| Fjölskyldan| Svíþjóð| Vinir| Vinnan
22 Jul 2009eee … jújú, alveg eins. Bara lítill tími til að skrifa um það … :o
Gulla og Hlynur Snær eyddu næstum tveimur vikum í Skandinavíu, fyrst hjá Andra og Lólý í Kaupmannahöfn og svo yfir til Sviþjóðar til Evu og Staffan.
Andri Freyr Hansson afrekaði það í Tívolíinu að hætta við eitthvað barnatækið og labba út áður en það fór af stað eins og áttræð kelling … ég held ég hefði látið mig hafa það, sama hversu hræddur ég hefði verið.
Á meðan skellti ég mér hins vegar til Portúgal að setja upp bókunarkerfið mitt hjá Eco Viagens, Portúgalskri ferða- og umboðsskrifstofu. Þetta er gríðarlega stórt skref fyrir ZEUS og gaman þegar öll vinnan sem maður hefur lagt á sig undanfarin ár er farin að bera árangur.
Ég tek hins vegar til mín orð viturs manns sem benti mér góðlátlega á að missa ekki sjónar á verkefninu, þó að vel gangi um stundarsakir.
3 komment við Ekkert að frétta úr Fannafoldinni?
ERla
July 23rd, 2009 at 14:31
Til lukku frændi ;)!!!
Téður Andri Freyr Hansson
July 24th, 2009 at 10:46
mikið ofboðslega hlakkar mig til að komast í fótbolta með þér….. mikið rosalega ætla ég að sparka í þig ;)
Árni Gunnar
July 24th, 2009 at 12:04
Andri minn … ég er nú ekkert hræddur við áttræðar kjellingar !