Í: Fjölskyldan| Íþróttir
28 May 2009Barcelona sigraði Manchester United í kvöld og varð þar með Evrópumeistari. Í þættinum sem á eftir kom, átti Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, frábæra samantekt á því af hverju Barcelona vann (næstu því orðrétt): “Það er mín skoðun að fleiri lykilleikmenn Barcelona áttu betri leik en lykilleikmenn United.”
Og þá kinkaði ljóskan við hliðina á honum kolli: “Ég er sammála”.
Ég held það sé varla hægt að sigra leik öðruvísi en að þínir lykilleikmenn séu betri en hinir … en hvað veit ég svo sem …
Hlynur Snær fékk að vaka lengur og horfa á leikinn … hann var eitthvað að skoða fótboltaspilin sín þegar Messi skoraði seinna mark Barcelona. Við Gulla fögnuðum helling, en það var eins og hann fattaði ekki neitt … var alveg í sínum heimi með spilin sín. Ég sagði við hann að Messi hefði skorað, og hann rétt leit upp og sagði: “Ég veit”. Og hélt áfram að skoða silfur Torres spilið sem hann fékk í dag.
Ekki hægt að kommenta við þessa færslu.