Í: Fjölskyldan
4 May 2009
Ég er búinn að segja þetta nokkrum sinnum í símann og tel því best að skrifa þetta bara hérna … þá geta þeir sem það vilja lesið sig til um hvernig helgin gekk fyrir sig.
Á fimmtudaginn var Hlynur Snær sendur heim úr skólanum með mikla magaverki. Þeim linnti ekkert þann daginn eða á föstudaginn og við fórum með hann á Barnaspítalann á föstudagskvöldinu þar sem hann var rannsakaður hátt og lágt.
Ekkert virtist koma út úr þessu með magaverkina, en það sem þau höfðu meiri áhyggjur af var mjög hár blóðþrýstingur hjá honum. Hann og Gulla voru á spítalanum yfir nótt en fengu að fara heim á laugardagsmorgunn, þar sem verkjunum hafði linnt og þrýstingurinn minnkað eitthvað örlítið.
Laugardagurinn var bara fínn hjá honum, hann sofnaði sáttur, en um 11 leytið komu verkirnir á ný, en nú töluvert harðari og lengur í einu. Við ákváðum að fara með hann aftur upp á spítala til að fá þrýstingsmælingu og tékk. Þrýstingurinn var við það sama og kvöldið áður, en sem betur fer náði hann að sofna niðri á spítala og við fórum því með hann heim.
Verkirnir hafa ekki komið aftur, sem betur fer, en hái blóðþrýstingurinn er það sem læknarnir eru að skoða núna.
Það geta verið margar orsakir á háum blóðþrýstingi hjá börnum og þess vegna fór Hlynur í ómskoðun í morgun sem verður lesið úr seinna í dag.
Ekki hægt að kommenta við þessa færslu.