— arnigunnar.net

Archive
May, 2009 Monthly archive

Barcelona sigraði Manchester United í kvöld og varð þar með Evrópumeistari. Í þættinum sem á eftir kom, átti Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, frábæra samantekt á því af hverju Barcelona vann (næstu því orðrétt): “Það er mín skoðun að fleiri lykilleikmenn Barcelona áttu betri leik en lykilleikmenn United.”

Og þá kinkaði ljóskan við hliðina á honum kolli: “Ég er sammála”.

Ég held það sé varla hægt að sigra leik öðruvísi en að þínir lykilleikmenn séu betri en hinir … en hvað veit ég svo sem …

Hlynur Snær fékk að vaka lengur og horfa á leikinn … hann var eitthvað að skoða fótboltaspilin sín þegar Messi skoraði seinna mark Barcelona. Við Gulla fögnuðum helling, en það var eins og hann fattaði ekki neitt … var alveg í sínum heimi með spilin sín. Ég sagði við hann að Messi hefði skorað, og hann rétt leit upp og sagði: “Ég veit”. Og hélt áfram að skoða silfur Torres spilið sem hann fékk í dag.

Gulla var um helgina að athuga að gamni sínu fargjöld til Svíþjóðar fyrir hana og Hlyn í sumar. Eva bauð henni að koma í viku meðan hún væri í fríi í lok júní og byrjun júlí.

Iceland Express er hætt að fljúga beint til Stokkhólms og fer bara til Gautaborgar.

Það þýðir að Icelandair situr eitt að kjötkötlunum á þessari leið og það fer sko ekkert á milli mála.

80.000 krónur fyrir Gullu og eitt barn takk fyrir. Á mann! 160.000 fyrir þau bæði. Þetta er bara gjörsamlega óskiljanlegt. Á sama tíma kostar á milli 30 og 40 þúsund fyrir manninn til Köben.

Þetta sagði Hlynur Snær í kvöld eftir að Hrafna var búin að syngja í Idol Stjörnuleit. Hann var með blóm í maganum og næstum með tár í augunum. Magnað að geta tjáð tilfinningar sínar svona :)

Ég er búinn að segja þetta nokkrum sinnum í símann og tel því best að skrifa þetta bara hérna … þá geta þeir sem það vilja lesið sig til um hvernig helgin gekk fyrir sig.

Á fimmtudaginn var Hlynur Snær sendur heim úr skólanum með mikla magaverki. Þeim linnti ekkert þann daginn eða á föstudaginn og við fórum með hann á Barnaspítalann á föstudagskvöldinu þar sem hann var rannsakaður hátt og lágt.

Ekkert virtist koma út úr þessu með magaverkina, en það sem þau höfðu meiri áhyggjur af var mjög hár blóðþrýstingur hjá honum. Hann og Gulla voru á spítalanum yfir nótt en fengu að fara heim á laugardagsmorgunn, þar sem verkjunum hafði linnt og þrýstingurinn minnkað eitthvað örlítið.

Laugardagurinn var bara fínn hjá honum, hann sofnaði sáttur, en um 11 leytið komu verkirnir á ný, en nú töluvert harðari og lengur í einu. Við ákváðum að fara með hann aftur upp á spítala til að fá þrýstingsmælingu og tékk. Þrýstingurinn var við það sama og kvöldið áður, en sem betur fer náði hann að sofna niðri á spítala og við fórum því með hann heim.

Verkirnir hafa ekki komið aftur, sem betur fer, en hái blóðþrýstingurinn er það sem læknarnir eru að skoða núna.

Það geta verið margar orsakir á háum blóðþrýstingi hjá börnum og þess vegna fór Hlynur í ómskoðun í morgun sem verður lesið úr seinna í dag.

Um síðustu helgi spilaði Hlynur Snær á vortónleikum Suzuki tónlistarskólans. Hann var svakalega duglegur að æfa sig fyrir tónleikana og spilaði Gaukinn eins og engill.