Nýtt verkefni: Ferðaþing - arnigunnar.net

Nýtt verkefni: Ferðaþing

Í: Fjölskyldan| Vinnan

22 Mar 2009

Ég hef ekki verið að gefa mér mikinn tíma undanfarið fyrir þennan blessaða vef. Búið að vera mikið að gerast í vinnunni, ZEUS í samstarfi við fyrirtækið Leiðir ehf höfum stofnað Ferðaþing, sem á að verða markaðstorg fyrir ferðaaðila á Íslandi, þar sem þeir geta selt vörur og þjónustu sín á milli.

Hún Erla besta frænka hjálpaði okkur í atvinnuviðtölum og við erum búnir að ráða framkvæmdastjóra sem á að koma þessu á koppinn. Þetta hefur hins vegar verið miklu, miklu meiri vinna fyrir mig en ég hélt, en vonandi verður þetta að einhverju spennandi í framtíðinni :)

Annars er bara allt í sínum farvegi. Gulla að vinna, Hlynur Snær í skólanum og ég að drukkna (að venju).

Hlynur Snær er gjörsamlega að brillera á píanóið finnst mér, alveg ótrúlega fljótur að pikka upp lögin sem hann á að læra og virkilega gaman að sjá hvað hann verður glaður þegar vel gengur. Stundum soldið ströggl að halda honum við efnið ef að illa gengur, en rosalega gaman engu að síður.

Ég þarf víst að vera á undan honum og á bara fullt í fangi með að læra lögin svo ég geti kennt honum … en mér finnst þetta rosalega gaman að læra á píanóið, er að reyna að læra önnur lög líka, og það er svaka stuð.

Ég er ekkert sérstaklega kúl í lagavali finnst fjölskyldunni … Axel F, Final Countdown og Star Wars Theme eru lög sem ég spila í tíma og ótíma við mikla gleði allra.

Ég fattaði svo að YouTube er ótæmandi uppspretta fyrir píanókennslu … magnað þetta internet :)



Ekki hægt að kommenta við þessa færslu.

  • Árni Gunnar: Andri minn ... ég er nú ekkert hræddur við áttræðar kjellingar ! [...]
  • Téður Andri Freyr Hansson: mikið ofboðslega hlakkar mig til að komast í fótbolta með þér..... mikið rosalega ætla ég [...]
  • ERla: Til lukku frændi ;)!!! [...]
  • Greta: Nú þá er bara að fljúga til Köben og skipta um vél þar. Getur varla kostað nálægt þessum [...]
  • Árni Gunnar: Þakka hlýleg orð ... við vorum í píanótíma í gær þar sem Elín hrósaði honum mikið fyr [...]

Síðan mín á Facebook

Myndir frá Flickr

  • Hlynur Snær glowing
  • Hlynur Snær enjoying the fireworks
  • Hlynur Snær enjoying the fireworks
  • Hlynur Snær enjoying the fireworks
  • Harry Potter ?
  • Ben 10 ?
  • Hlynur Snær opening presents
  • Hlynur Snær opening presents
  • Our christmas tree this year
  • Me helping Hlynur putting the top on ...
  • ... and then celebrating
  • Decorating the christmas tree

ODIN á Facebook

ODIN on Facebook

Flokkarnir