— arnigunnar.net

Archive
February, 2009 Monthly archive

Ég uppfærði útlitið á síðunni smá í kvöld … fannst kominn tími á nýtt þema á þetta. Bætti líka við hérna hægra megin einingu sem sækir nýjustu myndirnar á Flickr síðuðna mína.

Boston Globe er alltaf með flottar myndasyrpur sem ég hef endalaust gaman af að skoða. Núna voru þeir að setja inn myndir frá skógareldunum í Ástralíu, alveg magnaðar myndir.

Svo var ég að horfa á fréttirnar áðan og sá að gamall skólabróðir minn úr MS býr í Melbourne sem er nálægt þessum svæðum sem brenna hvað mest … hann var í viðtali á Stöð 2 í kvöld.

a28_17907935

Ég hef hingað til ekkert skrifað um þetta átak mitt, en í maí síðastliðnum byrjaði ég að æfa í WorldClass, byrjaði hægt en jók svo álagið og hraðann jafnt og þétt.

Ég var rétt um 96 kg þegar ég byrjaði, en náði takmarkinu mínu núna í dag, viktaði mig í hádeginu og var 85,3 kg. Ég setti mér takmark um að ná 85 fyrir áramótin, og er ekki nema mánuði á eftir áætlun sem ég er ekkert að væla yfir.

Ég hef notað MSN statusinn minn sem gott aðhald. Ég set kílóatöluna þar inn, og það er alveg djöfullegt þegar hún fer upp en ekki niður … maður er að segja öllum heiminum frá því, mjög gott aðhald.

En sem sagt … 11 kg farin, og nú er bara að halda áfram og byggja upp meiri vöðva og minnka björgunarhringinn ennþá meira :)

Yfirleitt læt ég boltann ekki pirra mig, en þetta fer bara alveg að verða komið gott af þessum Spánverja sem þykist vera að stjórna þessu skipi. Stjóri sem ætlar að treysta á einn framherja í titilbaráttu, framherja sem er búinn að vera meiddur hálft tímabilið þarf að láta skoða á sér hausinn.

Já …. selja Keane … góð hugmynd. Hann hefur reyndar ekki verið neitt sérstakur, en er maður með reynslu og var að skásnast þangað til honum var kippt út úr liðinu. Og þegar Torres meiðist, þá hefur Liverpool engan framherja. Engann. Góð hugmynd Benitez.

Maður sem hefur keypt 51 leikmann á 190 milljónir punda síðan hann tók við árið 2004 ætti að hafa meiri dýpt og betri hóp í höndunum, það er alveg á hreinu.

Og svo …. hrikalega dapurt tap í kvöld gegn Everton. Ég held ég sé búinn að sjá alla leiki Liverpool á þessu ári, og allir með tölu hafa verið hundslappir að frátöldum Chelsea leiknum.

Liverpool átti 5 skot á markið í kvöld í 120 mínútna leik. Það er skot á 24 mínútna fresti. 24 mínútur á milli skota á markið, alveg ótrúlegt.

Einkunnir fyrir leikinn gegn Everton 5. febrúar 2008

Pepe Reina: 6
Þokkalega traustur að venju, átti eina frábæra tvöfalda vörslu í seinni hálfleik.

Andrea Dossena: 0
Gat ekki blautann skít …. átti eina fyrirgjöf í leiknum sem gerði eitthvað, annars arfaslakur að venju.

Jamie Carragher: 5
Traustur, á ennþá erfitt með að koma boltanum frá sér.

Martin Skrtel: 8
Líst betur og betur á þennan, kraftmikill og er alltaf að verða betri í að senda boltann. Ef hann nær sendingargetu Daniel Agger, verður þetta okkar besti varnarmaður innan tíðar.

Álvaro Arbeloa: 2
Hundlélegur að venju, var mikið fyrir framan miðjulínuna, en kom lítið sem ekkert út úr því.

Xabi Alonso: 4
Furðu slappur í dag, búinn að vera mistækur allt tímabilið.

Steven Gerrard: 3
Gerði lítið þangað til hann fór útaf vegna meiðsla.

Lucas: 0
Heimskur, heimskari, heimskastur. Fékk á sig heimskulegt víti í síðasta leik og lét reka sig útaf í kvöld. Ótrúlega heimskulegt.

Alberto Riera: 0
Getur ekki tekið menn á, er ekki snöggur, ekki kraftmikill, varla skothæfur …. veit ekki alveg hvað hann er að gera í liðinu.

Dirk Kuyt: 0
Hlaupandi Duracell kanína sem veit ekki hvorum megin á vellinum hún á að vera.

Fernando Torres: 3
Hann átti ekki séns í Jagielka í kvöld. Svo einfalt er það. Lét Everton manninn ýta sér frá öllum boltum.

Yossi Benayoun: 2
Hrikalega slappur. Hef haft óbeit á þessum leikmanni síðan hann kom, hann var aðeins að koma til, en í kvöld sáum við hinn eina sanna Benayoun, leikmanninn sem kann ekki að spila fótbolta.

Aaaargh …. er of seint að byrja að halda með …. hmmm …. hvað ætti ég að velja …. Leeds kannski ?