— arnigunnar.net

Archive
December, 2008 Monthly archive

Mig dreymdi draum í nótt. Hrikalega skrýtinn draum. Davíð Oddsson seðlabankastjóri var að sýna mér skýrslusafn Landsspítalans sem geymt er langt í iðrum jarðar undir spítalanum við Hringbraut.

Ég man ekki af hverju við vorum að þvælast þarna, en hann sýndi mér sjúkraskýrslur ýmissa frægra og ófrægra manna og kvenna. Páll Óskar, Einar Ben, Steingrímur Hermannsson og fleiri góða fékk ég að sjá, en svo var hann með leynikassa sem ég mátti alls ekki kíkja ofaní …

Þýðir þetta eitthvað ??

Ég varð reiður í gær. Það gjörsamlega blossaði upp í mér reiði þegar fréttir Stöðvar 2 sögðu frá því að Stím, þetta félag sem gamli Glitnir sjálfur átti þriðjungs hlut í, hafi keypt og selt sama hlutinn fimm sinnum á fáum mánuðum.

Fimm sinnum!

Verð að viðurkenna að ég horfði á fréttirnar með öðru auganu við matarborðið, en skilaboðin komust alveg til skila.

Svo dett ég inn á Vísi seinna um kvöldið og þá er búið að draga fréttina til baka. Þetta var kolrangt hjá Stöð 2, viðskiptin áttu sér stað bara einu sinni. Það er reyndar búið að taka fréttina sem afsakar mistökin af vefnum af einhverjum ástæðum. En Viðskiptablaðið er sem betur fer ekki búið að eyða sinni frétt af málinu.

Reyndi svo að finna fréttina í fréttatímanum sjálfum, en það er búið að klippa hana þar út líka.

Í öllu þessu tali um ábyrgð og að menn eigi að axla hana … ætti Óskar Hrafn ekki að segja upp med det samme ?

Og þetta er nú ekki í fyrsta sinn sem þetta gerist. Um daginn þurfti Vísir að taka til baka frétt um forstjóra nýja Glitnis. Ekki skemmtilegt mynstur sem er í byggingu þarna.

Vil nú samt taka það fram að ég þekki Óskarinn af góðu einu, vann með honum þegar hann var að skrifa íþróttafréttir á Vísi og DV. Drengur góður, reyndar KR-ingur, en hver hefur sinn djöful að draga.