— arnigunnar.net

Archive
November, 2008 Monthly archive

Flestir vilja afnema verðtrygginguna. Stjórnmálamenn segja að það sé ekki hægt. Bara alls ekki.

Ég var að hugsa um þetta á leiðinni heim eftir að hafa gengið með syni mínum í skólann í morgun að það er kannski einn möguleiki í stöðunni.

Ef við höfum þessa greiðslujöfnunarleið og nýtum okkur hana, væri sniðugt að ríkið myndi segja sem svo að ef þú lendir í því að húsið þitt sé yfirverðsett, þá eru lán niður í 90% veðsetningu miðað við söluverð afskrifuð. Þannig myndum við alltaf eiga 10% í húsum og íbúðum okkar hið minnsta. Þetta er ekki kostnaður sem kæmi á ríkið í einni holskeflu, heldur yfir langt tímabil og því auðveldara að eiga við hann.

Þetta myndi jafnvel fá fólk til að vera áfram á þessu landi og halda áfram. Gefa því einhverja von og eitthvað að stefna á. Þá er það ekki bundið í húsi sínu án þess að geta selt.

Mér þykir þetta vera einföld og réttlát leið. Það er auðvelt að setja reglur um þetta, aðeins má gera þetta einu sinni, lánin verða að vera tekin fyrir desember 2008, viðkomandi verður að vera í skilum, ekki má selja fjölskyldumeðlimi o.s.frv.

Afnemum svo verðtrygginguna þegar við erum komin með alvöru gjaldmiðil.

Jahérna … sumir eru klókari í hausnum en aðrir. Ég skrifaði færslu um okkar ástkæra Ástþór Magnússon og nýju síðuna hans um Lýðveldið. Ég sá nefnilega strax að útlit síðunnar var nákvæmlega eins og útlit sem Sitefinity notar á sýnivef sinn.

Hversu hallærislegt sem manni kann að finnast það að nota þetta útlit, þá má hann nota það að vild, svo fremi sem að útgáfa hugbúnaðarins sé í lagi og leyfisgjöld greidd.

Ég kallaði hann víst nafni sem hann var ekkert sérstaklega sáttur við. Ég fékk fyrsta póstinn frá honum í gærkvöldi, þar sem hann útskýrði málið, þá setti ég athugasemd við færsluna, en það er víst ekki nóg að mati Ástþórs okkar. Ef ég tæki ekki út færsluna fyrir 15:00 í dag, þá yrði mér stefnt fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur.

Þabarrasonna …. drama í gangi :)

Ég er alveg maður í að segja sorry ef ég hef gert eitthvað rangt, það er flestum sem mig þekkja ljóst. Í þessu tilfelli hafði ég ekki rétt fyrir mér og bað blessaðann manninn afsökunar.

Ég hef því tekið viðkomandi bloggfærslu úr birtingu, en ef þið viljið lesa það sem ég skrifaði, þá er hægt að sjá afrit af færslunni á vefþjónum Google, ég get því miður ekki eytt þeirri færslu líka. Viðskiptaráðherrann okkar, hann Björgvin ætti nú að vita það.

Er þetta virkilega besta leiðin til að nýta tímann okkar í á dögum sem þessum ?

Og nei, þetta snýst ekki um peninga, lán eða mafíustarfsemi, heldur hrikalega kúl hillur sem hönnuður í Rússlandi hefur gert.

Ein þeirra heitir “icelandic tree”, og það er mynd af henni hér fyrir neðan.

841371226179887

Stuttu eftir að ég stofnaði lita fyrirtækið mitt, ZEUS web works, var ég að keyra út nýja útgáfu af vef fyrir einn viðskiptavin okkar.

Þróunin hafði gengið vel og þetta átti ekki að vera mikið mál að skipta út gamla vefnum og setja þann nýja í staðinn.

Ég færi allar skrárnar yfir á vefþjóninn sem hýsir vefinn, en gleymi að breyta tengiskrám sem segja vefnum að tengjast við réttann gagnagrunn.

Að venju gerði ég þetta seint um kvöld eða snemma nætur, sem er i sjálfu sér engin afsökun, en það er best að gera svona hluti þegar minnst umferð er á vefsvæðinu.

Þessi risa mistök mín komast ekki upp fyrr en eftir hádegi daginn eftir þegar við tökum eftir því að engin gögn eru að vistast í gagnagrunninum.

Þessi mistök mín kölluðu á auka vinnu fyrir fullt af fólki innan fyrirtækisins, eitthvað sem hefði verið hægt að koma í veg fyrir, og átti ekki að gerast.

Og hvað gerði ég þá? Varpaði ábyrgðinni á aðra? Teygði lopann og talaði í hringi?

Nei. Ég sendi tölvupóst á alla þá sem urðu fyrir þessu, og baðst afsökunar. Tók ábyrgð, og lofaði að læra af þessum mistökum.

Ég hélt viðskiptavininum, þeir voru ánægðir með afsökunarbeiðnina og við lærðum af þessu.

Og nú spyr ég:

Af hverju geta stjórnmálamenn og embættismenn ekki gert slíkt hið sama ???

… en ekki lengur.

Mér fannst hann vera að gera góða hluti, n.b. eftir að hann hætti í pólitík. Sá viðtal við hann í Kastljósinu áðan, og mæ god, þvílík steypa sem kemur frá manninum …