— arnigunnar.net

Archive
October, 2008 Monthly archive

Ég verð bara að segja fyrir mína parta að Davíð Oddsson var frábær í Kastljósinu í kvöld. Hann talaði skýrt og greinilega um það sem hefur verið í gangi hérna undanfarna daga og vikur.

Skýrustu skilaboðin voru þessi: “Við ætlum ekki að borga erlendar skuldir bankanna”.

Þetta þýðir að útrásarvíkingarnir verða að standa skil á sínum hlutum sjálfir, og líklega fara erlendir hlutar bankanna í gjaldþrot. Eftir standa 1-2 Íslenskir bankar með enga erlenda starfsemi.

Mér líður betur í kvöld …

Hérna er að finna neyðarlögin á Alþingisvefnum. Hvet alla til að lesa þau upp til agna …

Mér datt þetta í hug þegar ég var að renna yfir fótboltafréttirnar í morgun. Tottenham sekkur eins og Titanic, því þeir hafa ekki byrjað eins illa síðan árið 1912, sama ár og Titanic sökk.

En hvað er svona líkt? Jú. Bæði Juande Ramos og Geir H. Haarde virðast bjargarlausir, koma ekki fram með neinar lausnir. Þeir blaðra fullt, en það kemur ekkert út úr því. Liðin þeirra eru að spila handónýta taktík og leikmennirnir vita ekkert í hvort fótinn á að stíga. Óvissan er algjör. Hvað gerist næst? Hvaða taktík spilum við um næstu helgi? Verður þjálfarinn okkar á sínum stað á morgun?

Og hvað eru stuðningsmenn Tottenham að fara fram á núna? Jú, að reka hinn spánska Ramos. Ekki seinna en strax. En hann, eins og Geir, þráast við og segist ekkert fararsnið vera á sér.

Mér finnst þetta ferli allt mjög furðulegt. Ég sá aukafréttatíma á RÚV í gær þar sem fyrirliðinn í okkar liði, Geir H. Haarde, kom fram og sagði að ekki væri tímabært að koma fram með aðgerðaráætlun.

Liðið okkar, með Geir í fararbroddi fundaði alla helgina, og það kom ekkert út úr því, nema að bankarnir eiga að selja eignir í útlöndum til að minnka umsvif sín. That’s it!

Er maðurinn ekki að fatta að það sem hræðir flesta er þessi nagandi óvissa um það sem koma skal. Hvernig verður ástandið um næstu mánaðarmót? Mun lánið mitt hækka um rúmlega prósent eins og 1. október? Mun ég fá mínar launahækkanir, hvað verður um kjarasamningana? Heldur gengið áfram að falla? Fara Landsbanki og Kaupþing á hausinn?

Þessi fundahrina um helgina virðist ekki hafa skilað neinu, hvernig sem svo stendur á því.

Menn bara gjöra svo vel að verða að hysja upp um sig brækurnar og fara að gera eitthvað af viti. Það er bara þannig.

Vil svo benda á bloggið hjá Pétri Tyrfingssyni. Hefur skemmtilega og skýra sýn á þetta allt saman.

Smellið á myndina til að fá stærri útgáfu … þetta er algjör snilld :)

Amm … rétt er það, þetta er ég þarna á bakvið Bubba á forsíðu DV í dag … hægt er að lesa viðtalið á vef DV.

Hún las þetta fyrir mig blaðamaðurinn í gær, en ég gerði mér ekki alveg grein fyrir því hversu neikvæður ég hljómaði. Þetta er svo sem allt satt og rétt, en þegar þetta er tekið saman, er þetta full neikvætt.

Við Gulla höfum reynt að taka jákvæðann pól í hæðina og horft á björtu hliðarnar á þessu. Hlynur Snær borðar allavega vel á hverju kvöldi ef það verður grjónagrautur í öll mál ;)

Öll él birtir upp um síðir og nú þarf ríkisstjórnin bara að setja fram áætlun hvernig á að tækla vandamálið. Það dugar ekki lengur að segja bara að þetta hljóti nú að fara að lagast og benda á markaðinn í USA sem sökudólginn.

Við hjá ZEUS höfum ekkert hækkað okkar verð á þessu ári, og ætlum ekki að gera það. Reynum að leggja okkar af mörkum til að halda verðbólgunni niðri.

Tökum slaginn saman og horfum fram á bjartari tíma á næsta ári …