Engin kreppa hér

Ég nenni ekki að skrifa meira um kreppuna, ástandið eða pólitíkusana … gefum þeim smá frí í bili.

Það er vetrarfrí hjá Hlyni Snæ í skólanum nú á fimmtudag, föstudag og mánudag. Pabbi í Vestmannaeyjum bauðst til að taka hann, og þáðum við það með miklum þökkum. Hann hlakkar rosalega til að fara, finnst alltaf gaman að koma til afa í Vestmannaeyjum, og mesta sportið að sjálfsögðu að fljúga einn :)

Amma hennar Gullu, Jakobína, eða Amma Bína eins og hún er kölluð á mínu heimili varð níræð á sunnudaginn. Ég tók nokkrar myndir af henni og Hlyni Snæ og setti á Flickr síðuna.

Sá sunnudagur var fjórði sunnudagurinn í röð sem við fórum í afmæli kl. 15:00. Fyrstur var Guðjón Trausti, svo Trausti Þór, svo Rúnar og svo amma Bína. Veit eiginlega ekki alveg hvað við eigum að gera á sunnudaginn kl. 15:00 … held það sé ekkert afmæli þá. En það er afmæli á laugardaginn kl. 11 … við kannski breytum klukkunni og dagatalinu og blekkjum okkur til að halda að það sé sunnudagur.

Ruslpósttilraun

Fyrir um það bil mánuði síðan prófaði ég að hætta að eyða pósti úr ruslpóstsíunni sem Google svo góðlátlega setur allann ruslpóstinn minn í. Og niðurstaðan eftir mánuð? Næstum 3.500 ruslpóstskeyti. Þrjúþúsundogfimmhundruð skeyti með tilboðum um typpalengingar, viagra tilboð (er ég orðinn svo gamall?), endalaust Nígeríusvindl og ég veit ekki hvað og hvað … Mér finnst alveg merkilegt að það sé virkilega til fólk sem annað hvort svarar svona pósti eða tekur þá trúanlega. Þetta hættir ekki fyrr en allir í veröldinni geta ignorað þessa pósta.



2 athugasemdir við “Engin kreppa hér”

  1. Pabbi skrifaði:

    Oct 23, 08 at 10:15

    Við erum komnir í vinnuna hjá afa, hann vaknaði í morgun kl. 8 og vakti afa sinn og var þá búin að kveikja öll ljós í húsinu honum fannst svo dimmt, en annars allt í góðu í Eyjum.

  2. Árni Gunnar skrifaði:

    Oct 23, 08 at 14:46

    Frábært … gott að heyra að allt er í góðu :)