Hvar er Forsetinn ?
Í þessu fjármálaóveðri sem geysað hefur síðastliðnar 2 vikur hef ég bara ekki séð forseta vorn, Ólaf Ragnar Grímsson að neinu viti. Hann var í viðtali á Stöð 2 í síðustu viku minnir mig, en meira var það ekki.
Samkvæmt forseti.is, þá er maðurinn á landinu, hvernig væri nú að koma fram og styðja aðeins við bakið á brothættri þjóð þegar hún þarf mest á því að halda ?
Ég er búinn að lesa nokkrar sögur af fólki sem hefur lagt aleiguna í Peningamarkaðsbréf hjá bönkunun, svipað og ég gerði með lausafé míns fyrirtækis sem ég setti í hinn alræmda Sjóð 9 hjá Glitni. Nú þegar lokað er fyrir viðskipti í þessum sjóðum stendur fullt af fólki frammi fyrir því að missa aleiguna. Aleiguna. Það er ótrúlegt til þess að vita. Ráðleggingar þjónustufulltrúa um að þessi bréf séu pottþétt, örugg og ekki hægt að tapa peningunum farin fyrir bý.
Svo flýgur Jón Ásgeir af landi brott í einkaþotunni. Kemur væntanlega aldrei aftur … ef hann lætur sjá sig, þá mætti taka hann í innvortis eiturlyfjaleit. Helst tvisvar.
En ég er nú samt bjartsýnismaður í eðli mínu. Við fjölskyldan erum ennþá saman, getum fætt okkur og klætt, heilsan í fínu standi og framtíðin björt. Eftir að við misstum Dag Frey fyrir rúmlega 7 árum síðan, þá breyttust áherslurnar hjá okkur. Við skildum þá hvað skipti máli í lífinu. Húsið okkar, bílarnir og þetta skipta bara engu máli. Þetta eykur þægindin, en þegar öllu er á botninn hvolft, þá er það fjölskylda og vinir sem skipta mann mestu máli og það var lika þetta fólk sem maður saknaði mest þegar við bjuggum í Svíþjóð. Í þessu aftakaveðri sem gengur yfir landið næstu vikur og mánuði vona ég að fólk sjái sér fært að breyta áherslum sínum í lífinu og fókusa á það sem mikilvægast.
Og þá að því sem er mikilvægast …
Hlynur Snær er að fara að taka þátt í sínu fyrsta íþróttamóti. Hann er að fara að spila körfubolta með Fjölni um helgina á minni-bolta móti sem KR heldur. Hann er svaka spenntur fyrir þessu, það verður gaman að fylgjast með honum þar.
Gulla er á fullu í skólanum, fullt að gera hjá henni þar.
Vinnan gengur bara vel, þótt ótrúlegt megi virðast. Við höfum enn nóg að gera og höldum bara okkar striki þangað til annað kemur í ljós.
Á meðan ég skrifa, þá er ég að hlusta á nýja plötu Ný Danskrar, Turninn. Hægt er að forhlusta á tónlist.is. Er að rúlla í gegn í annað sinn, og þetta er algjör massi, enda ekki við öðru að búast, Danni kominn heim og allt í gangi. Andri, ertu með á útgáfutónleika ??