Geir að gera ekki neitt ? - arnigunnar.net

Geir að gera ekki neitt ?

Í: Allt annað| Fjölskyldan| Stjórnmál

6 Oct 2008

Mér finnst þetta ferli allt mjög furðulegt. Ég sá aukafréttatíma á RÚV í gær þar sem fyrirliðinn í okkar liði, Geir H. Haarde, kom fram og sagði að ekki væri tímabært að koma fram með aðgerðaráætlun.

Liðið okkar, með Geir í fararbroddi fundaði alla helgina, og það kom ekkert út úr því, nema að bankarnir eiga að selja eignir í útlöndum til að minnka umsvif sín. That’s it!

Er maðurinn ekki að fatta að það sem hræðir flesta er þessi nagandi óvissa um það sem koma skal. Hvernig verður ástandið um næstu mánaðarmót? Mun lánið mitt hækka um rúmlega prósent eins og 1. október? Mun ég fá mínar launahækkanir, hvað verður um kjarasamningana? Heldur gengið áfram að falla? Fara Landsbanki og Kaupþing á hausinn?

Þessi fundahrina um helgina virðist ekki hafa skilað neinu, hvernig sem svo stendur á því.

Menn bara gjöra svo vel að verða að hysja upp um sig brækurnar og fara að gera eitthvað af viti. Það er bara þannig.

Vil svo benda á bloggið hjá Pétri Tyrfingssyni. Hefur skemmtilega og skýra sýn á þetta allt saman.



Ekki hægt að kommenta við þessa færslu.


  • Greta: Nú þá er bara að fljúga til Köben og skipta um vél þar. Getur varla kostað nálægt þessum [...]
  • Árni Gunnar: Þakka hlýleg orð ... við vorum í píanótíma í gær þar sem Elín hrósaði honum mikið fyr [...]
  • Amma: Mjög svo flottur. Gaman að vera viðstödd [...]
  • Haukur H. Þórsson: Noh, helvíti er hann öflugur :-) [...]
  • Bjarni og Co: Stórglæsilegt frændi :) [...]

Myndir frá Flickr

  • My workspace
  • Píanómeistari
  • Buslustrákar
  • Buslustrákar
  • Tómas Logi
  • Sofandi?
  • Buslustrákar
  • Buslustrákur
  • Hlynur Snær á nýja hjólinu
  • Hlynur Snær í Perlunni
  • Hlynur Snær í Perlunni
  • Hlynur Snær og Stefán Ingi

Flokkarnir