— arnigunnar.net

Archive
September, 2008 Monthly archive

Hvar endar þetta eiginlega … ??

Ég er orðinn viðskiptavinur ríkisins. Hverjum hefði dottið það í hug þegar við fluttum heim frá Svíþjoð fyrir tæplega einu og hálfu ári síðan.

Ég stofnaði fyrirtæki, var gríðarlega bjartsýnn á framtíðina, allt á uppleið alls staðar.

Núna þarf ríkið að kaupa viðskiptabankann minn, lánið sem við tókum fyrir húsinu hefur stórhækkað, á sama tíma og verð hússins hefur lækkað um annað eins. Þeir peningar sem við Gulla höfðum unnið okkur inn þessi rúmlega 11 ár sem við höfum búið saman hafa verið þurrkaðir út á 9 mánuðum.

Svakalegt.

EN … það þýðir ekki að væla, eða vera bitur yfir því sem búið er. Maður verður að reyna að vinna sem bestu út úr þeim spilum sem maður hefur á hendi.

Við höfum ennþá 10 fingur og 10 tær, Hlyni Snæ gengur vel í skólanum og ég get farið að hitta vini mína og spila fótbolta á eftir. Hvað þarf maður meira ??

Með von um batnandi tíð með blóm í haga … :)

Hlynur Snær syngur:

Hafið bláa hafið, hugann étur …

Jæja … þá er vika 2 hjá þeim stutta næstum búin í skólanum og hann er þetta líka glaður með þetta allt saman.

Auðvitað hafa komið upp hin og þessi atriði, hann hefur aðeins verið að láta hendur skipta og tvisvar sett eitthvað sem ekki má í buxurnar, en fyrir utan það gengur bara vel.

Hann er rosalega ánægður með allt í skólanum og finnst skemmtilegast að vinna í vinnubókinni. Hann er orðinn fluglæs (var það fyrir þónokkru síðan) og okkur fanst rosalega fyndið að hann væri að lesa í lestrarbók fyrir algjöra byrjendur. En hann tók þessu bara vel … las eins og honum hafði verið sett fyrir og var bara sáttur við það.

Við höfum labbað með honum í skólann þessa fyrstu daga, Gulla fyrstu 2 og svo tók ég við. Það er fínt að fá smá göngutúr á morgnana … bætir bara við líkamsræktina ;)

Gulla var í Svíþjóð síðustu helgi, skrapp í kräftskiva hjá Evu. Var víst svaka stuð, og djammað til kl. 5 um morguninn. Ég fór á meðan í matarboð hjá fjölskyldunni hennar Gullu … aleinn … skil ekki að hún skuli taka Evu framyfir matarboð með mér …

Annars er bara allt í sínum vanagangi … éta, borða og sofa.