— arnigunnar.net

Bjarsýniskast þjóðarinnar

Þetta var bara æðislegt áðan … að taka Þjóðverjana í bakaríið á ÓL í Peking. Það voru allir að standa sig og nú tökum við sem þjóð massívt bjartsýniskast med det samme

Nú er það bara ÓL titillinn sem blívur, ekkert minna. Yeah ræt

Annars höfum við það bara gott, Hlynur Snær varð 6 ára í gær og Dagur Freyr hefði orðið 7 ára síðastliðinn sunnudag.

Það var mikið um dýrðir í afmæli þess stutta, hann var alveg svakalega ánægður með allar gjafirnar, og fékk heilar 5 afmælisveislur á 2 dögum, hvorki meira né minna. Fyrst á sunnudaginn í Kringlunni með vinum og jafnöldrum, svo heima um kvöldið með fjölskyldunni. Í gær var svo smá veisla á Vinaminni og svo komu Magga og Pétur í afganga í gærkvöldi, og gáfu honum pakka. Það var tekið gilt sem heil afmælisveisla. Svo hringdi Dúfa frænka og söng fyrir hann afmælissönginn, og það var heil afmælisveisla líka :)

Á sunnudaginn fórum við upp í kirkjugarð með 6 rauðar rósir til að setja á leiðið hjá Degi. Það komust bara 5 fyrir í blómapottinum, og Hlynur fékk að eiga eina sjálfur. Hann var nú ekki á því að eiga hana lengi, því við komum við hjá Sverri og Gretu þar sem hann gaf Elísu dóttur þeirra (6 ára) rósina sem hann átti. Talaði svo ekki um annað á leiðinni heim en hvað hann væri ástfanginn. “Mamma, ég er svo ástfanginn, sjáðu bara   hvað ég brosi breitt,” sagði hann.

Ég var svo að setja inn nokkrar nýjar myndir á Flickr síðuna