— arnigunnar.net

Tónleikar í rigningunni

og guttinn bara á forsíðu mbl.is !!!

Við skelltum okkur í Laugardalinn í kvöld með Erni frænda á tónleika með Ný Döns, Ingó og Veðurguðunum og Stuðmönnum.

Fórum á Eldsmiðjuna að borða fyrst, þar sem Pétur Pan í sjónvarpinu var meira spennandi en ísbarinn … veit ekki alveg hvernig það gerðist.

Löbbuðum svo niðureftur. Ný Dönsk byrjaði og voru brilliant að venju. Ingó og Veðurguðirnirn voru bara svaka góðir líka. Taka sig svona nett alvarlega og spiluðu skemmtileg lög. Hlynur Snær stóð upp við sviðið nánast allann tímann og söng með því sem hann kunni. Tók vel undir þegar Ingó söng Mér finnst rigningin góð og svo auðvitað Bahama.

Og fyrir þá sem ekki nenna að fara inn á fréttina á MBL, þá er myndin hérna, guttinn mjög alvarlegur að fylgjast með tónlistinni: