— arnigunnar.net

Archive
July, 2008 Monthly archive

Sá sem flutti “the last lecture” sem ég skrifaði um fyrir nokkru síðan, lést í dag. Ég keypti bókina sem hann skrifaði líka og hafði mikið gagn og gaman af.

Megi hann hvíla í friði …

( í bili )

Ég, Gummi, Arnar og Andri höfum hist reglulega í hádeginu síðan ég flutti heim frá Svíaríki, og í dag var síðasta hádegismáltíðin hjá okkur fjórum í bili, því á mánudaginn ætla Andri og co að flytja til Danmerkur.

Það er ekkert gaman að horfa á eftir þeim fara, en við erum þess full viss að þau koma aftur einhvertímann, og sem betur fer er stutt að fara yfir, bæði fyrir þau og okkur.

Góða ferð öll sömul … :)

Og í fréttum af færslunni hérna fyrir neðan, þá hefur hann Guðmundur vinur okkar ákveðið að stökkva farþega-fallhlífarstökk í ágúst. Hann fékk næstum því að stökkva þegar við steggjuðum kappann í maí, en núna ætlar hann að stökkva “for real”.

Hann er að reyna að mana mig upp í að koma með … á eftir að ákvaða það alveg … það yrði allavega gaman að fara í farþegastökk, ekki alveg viss um að ég þori samt.

Þetta eru skilaboð til Gumma Grétars. Hann er vinsamlegast beðinn um að standa við það sem hann sagði daginn sem hann var steggjaður. Ertu maður eða mús ??

Vakna kl. 06:34 … þetta er náttúrulega ekki heilbrigt. Kona og barn meira að segja í burtu …

Ég rakst á þennan lista um daginn … Þetta fólk á sér ekkert líf …

  1. Munnmök eru bönnuð í 18 ríkjum.
  2. Í Virginíu er bannað að sofa hjá með ljósin kveikt.
  3. Í Willowdale í Oregon er bannað að “tala ljótt” þegar sofið er hjá.
  4. Í Georgíu er bannað að sofa hjá nema viðkomandi aðilar séu giftir.
  5. Allar aðrar stellingar en trúboðastellingin eru bannaðar í höfuðborg Bandaríkjanna, Washington.
  6. Í Connorswille, Wisconsin er karlmanni bannað að skjóta af byssu þegar konan hans fær fullnægingu.
  7. Í Harrisburg, Pennsylvaníu er bannað að hafa samfarir við trukkabílstjóra á meðan hann borgar vegatollinn.
  8. Í Washington ríki má hafa samfarir við dýr ef þau eru meira en 20 kg að þyngd.

Það segir Hlynur Snær allavega …

Hlynur-Snær-03 (WinCE)