Landslag tannanna
Ég fór til tannlæknis áðan … bara til að láta kíkja á stellið og sjá hvernig staðan væri. Hef ekki farið til tannsa í háa herrans tíð, örugglega ekki nema einu sinni síðan um tvítugt.
Og stellið er bara í fínu lagi !
Hún sagði tannlæknirinn að hún hefði bara sjaldan séð svona flott stell, sem væri næstum orðið 34 ára gamalt … :)
Það hafði safnast soldill tannsteinn niðri fyrir aftan framtennurnar og hún hreinsaði það allt saman. Og nú er allt í einu svakalegt bil á milli tannanna … þvílíkt erfitt að venjast því, svaka landslag bara …
Annars er bara EM og sumarstuð á heimilinu …