— arnigunnar.net

Myndir frá Hiroshima

Rakst á þetta á Digg … þetta er alveg svakalegt að sjá, hvað kjarnorkusprengja Bandaríkjamanna fór illa með íbúa Japönsku borgarinnar Hiroshima.

capp_7

Sprengjan sprakk þann 6. ágúst 1945 kl. 08:15 að morgni. Talið er að um 90% allra bygginga í borginni hafi jafnast við jörðu.

70.000 íbúar létust samstundis, og talið er að allt að 200.000 manns hafi látist af sjúkdómum tengdum sprengingunni fram til ársins 1950.