Ég hef nú ekki skrifað um þetta áður, en ég hef verið á móti þessum aðgerðum síðan þeir byrjuðu á þessu fyrir um mánuði síðan.
Ég get svo sem skilið að þeir séu ekki sáttir við sína stöðu, ef öll aðföng myndu hækka í mínu fyrirtæki yrði ég ekkert sáttur við það, en ég þyrfti þá að velta því yfir á mína viðskiptavini, það er ekkert flóknara en það.
Mér finnst líka eins og þeir sjálfir hafi misst sjónar á því hverju er verið að berjast fyrir. Þegar þessi Sturla er spurður þessa dagana af fréttamönnum vælir hann bara um að alþingismenn þurfi að fara að gera “eitthvað”. Ekki orð um bensínverð eða hvíldartíma, enda held ég að hann sé farinn að sjá að þau mál halda ekki vatni.
Hingað til sýnis mér trukkabílstjórarnir halda uppi 2 aðal kröfum. Lækka bensínverð og losa um reglugerð um hvíldartíma á vinnudögum.
Bensín og olía hafa hækkað umtalsvert síðustu mánuði. Það er staðreynd sem ekki er hægt að fela sig á bakvið. Ríkið tekur fasta krónutölu á hvern lítra (um 52 krónur ef mig misminnir ekki) og svo auðvitað virðisaukaskatt. Heimsmarkaðsverðið hefur hækkað og svo hefur auðvitað gengið lækkað. En hvað á ríkið að gera í því ? Ríkið stjórnar hvorki heimsmarkaðsverðinu, né genginu, þannig að þeir eru að beina sínum mótmælum í kolranga átt.
Ég sá viðtal við Sturlu í Kastljósinu þar sem hann sagði að bensínverðið ætti að vera sambærilegt hérna og í Bandaríkjunum. Ég reiknaði út að líterinn af bensíni í Bandaríkjunum er rétt undir dollar ($ 0,94). Sem á gengi dagsins í gær er rétt tæplega 70 krónur. Verðið hjá OB í dag er 148,9 kr. Rúmlega tvöfalt meira. Þó að ríkið myndi afnema olíugjaldið, þá myndi það ekki nægja.
Þetta er svona dæmigert frá þessum bílstjórum. Það er eins og þeir viti ekkert hvað þeir eigi að segja eða gera. Ekkert skipulag, bara MÓTMÆLA!
Ég tók mig til og fann reglugerðina sem þeir eru svo ósáttir við. Og það er áhugaverð lesning. Á hverjum 4.5 tímum í vinnu verða þeir að hvíla sig í 45 mínútur. Þeir geta skipt þessum 45 mínútum í þrennt hvenær sem er á þessum 4.5 tímum. Þannig að rökin um að þeir þurfi að stoppa uppi á miðri Holtavörðuheiði til að taka hvíld fara út um gluggann.
Þeir mega vinna 9 tíma á dag, en 10 tíma tvisvar í viku. Ég verð bara að segja fyrir mig að ég er ekkert sérstaklega spenntur fyrir því að mæta bílstjóra á stórum bíl sem hefur verið að keyra mikið lengur en þetta.
Svo rakst ég á aðra grein í reglugerðinni sem hljóðar svona:
Ökumanni er heimilt að víkja frá ákvæðum reglugerðarinnar að því tilskildu að umferðaröryggi sé ekki teflt í tvísýnu, þurfi hann að ná hentugum áfangastað, enda sé það nauðsynlegt til að tryggja öryggi fólks eða til þess að koma í veg fyrir tjón á bifreið eða farmi. Noti ökumaður þessa heimild, skal hann skrá í ökurita með hvaða hætti og hvers vegna það var gert.
Þarna segir nú bara hreint út að þeir megi lengja aksturstímann ef á þarf að halda, ef þeir eru uppi á miðri heiði eða á þröngum vegi.
Ég hef ekki heyrt frá þessum bílstjórum nákvæmlega hvað það er við þessa reglugerð sem þeir eru ósáttir við. Þeir mættu koma því betur frá sér svo maður geti gert sér betur grein fyrir því hverju þeir eru að berjast fyrir.
Mér sýnist að það sem gerðist í gær sé alveg skírt dæmi um að trukkabílstjórarnir eru búnir að missa tökin á ástandinu. Þetta hefur verið að stig magnast og þetta var í raun óumflýanlegt að til átaka skyldi koma.
Bílstjórarnir fóru ekki að fyrirmælum lögreglu um að færa bílana strax. Yfirklór þeirra um að það hafi verið fólk á götunni er hjákátlegt. Þegar svo lögreglan ákveður að rýma svæðið til að koma bílunum í burtu sjálf, fer allt í bál og brand.
Ég held nú samt að lögreglan hafi gengið aðeins of langt í gær að tryggja vinnufrið við að færa bílana í burtu. Það hefði verið alveg nóg að koma fólkinu af götunni og inn á bílastæðið hjá Olís, en algjör óþarfi að vera að elta fólk lang aftur fyrir bensínstöðina.
Svo finnst mér alveg magnað hvað fólk er fljótt að álykta um persónur sem það sér í örstutta stund í sjónvarpinu. Sá lögreglumaður sem fékk steininn í hausinn og leiddi línuna með piparúðabrúsa þegar lögreglan hóf aðgerðir sínar er góður vinur minn. Ég hef þekkt hann í næstum 10 ár og þetta er svo rólegur og yfirvegaður einstaklingur að ég þekki fáa aðra sem ég myndi treysta til að halda haus í svona aðstæðum.
En fólk er búið að dæma hann og félaga hans sem ofbeldissjúka brjálæðinga, sem eru í sérsveitinni bara til að fá að berja á fólki. Ekkert gæti verið lengra frá sannleikanum. Fólk ætti að gæta orða sinna á bloggi og víðar.
23 komment við Blessaðir trukkabílstjórarnir
Tinna Haraldsdóttir
April 25th, 2008 at 00:12
Flott blogg og ég er alveg sammála öllu sem þú segir. Þetta hefur gengið of langt af hálfu trukkabílstjóra. Lögreglan er bara að sinna sínu starfi – bílstjórarnir eru ekki að gera það.
Sveinn Þórhallsson
April 25th, 2008 at 14:03
Er í lagi með vin þinn lögregluþjóninn?
Mamma
April 25th, 2008 at 16:04
Góður pistill hjá þér. Aðgerðir bílstjóra er komin út í algjöra vitleysu
kv. mamma
Davíð
April 25th, 2008 at 17:19
Loksins rekst maður á pistil sem að er skrifaður á málefnalegan hátt. Ég gæti ekki verið meira sammála þér. Ég er sjálfur með meirapróf þó að ég starfi ekki við það, en ég vissi vel hvernig þessi hvíldartími virkaði og fannst þar af leiðandi ekki hægt að segja að málstaður þessa ágætu manna væri góður.
p.s: Ég vona að vinur þinn verði fljótur að jafna sig.
Konni
April 25th, 2008 at 17:46
þetta er ekki hlutlaust blogg, auðvitað stendur þú með vinum þínum
Nonni
April 25th, 2008 at 17:56
Auðvitað stendur maður með vinum sínum en ég held að hann þekki manninn betur heldur en þessir sem eru að kalla lögguna öllum illum nöfnum.
Einnig er maður að heyra ýmsar sögur um hann Sturlu. Að hann sé ekki samkvæmur sjálfum sér. Hann vill að löggan (við skattgreiðendur) borgi bílinn sem ólöglega lagt, en hann á víst að hafa valdið miklum skaða á hinum ýmsum vinnuvélum sjálfur í gegnum tíðina og alltaf neitað að borga sjálfur.
Ég viðurkenni að ég veit ekki sannleiksgildi þessarar kjaftasögu en hún er sú sem lætur hann Sturlu líta best út af þeim sem ég hef heyrt.
Jón Kr.Guð.
April 25th, 2008 at 18:57
Haldið þið að vörubílstjórarnir hafi viljað eggjakast frá Láru Ómars.
Garðar
April 25th, 2008 at 19:34
Virkilega góður pistill. Er hjartanlega sammála öllu sem að þú nefnir. Alveg ótrúlegt að Sturla og félagar telji sig hafa stuðning meirihluta þjóðarinnar, ber bara vitni um makalausan dómgreindarskort þeirra.
Eyþór
April 25th, 2008 at 20:06
það var mikið að einhvcer fór að blogga á málefnalegan hátt, flott hjá þér, mæli eindregið með því að fréttastofurnar og eða blöðin taki viðtal við þig (það væri þá loksins að mað fengi að heyra í einhverjum með viti) og hvað löggurnar varðar þá stend ég eindregið með þeim, lögreglan á ekki að láta valta yfir sig.
xxx
April 25th, 2008 at 20:31
bílstjórinn sem sló lögregluna í andlitið er ekki með öllum mjalla..
Slayer
April 25th, 2008 at 20:49
Þetta er nokkuð málefnalegt blogg hjá þér.. en ég hef samt sjaldan verið eins ósámmála nokkrum manni og þér núna. Þú segir að lögreglan hafi gengið aðeins of langt.. sem er gróflega mikið understatement, það þarf ekki annað en að skoða myndböndin sem tekin voru á mótmælunum til þess að sjá að lögreglan beitti fólkið grófu ofbeldi og það nokkrum sinnum án þess að fólk hefði gert neitt af viti til þess að verðskulda slíka meðferð. Auðvitað átti fólkið að hlíða tilmælum lögreglunnar en það er alls engin afsökun fyrir því að snúast gegn lýðnum með vopnum og ofbeldi. Þetta voru ekki allt mótmælendur og vörubílstjórar heldur venjulegt fólk að athuga með stöðu mála. Myndbandið hérna http://www.youtube.com/watch?v=_f0GVK6wzfQ sýnir að mínu mati nokkuð vel hvað ég er að meina. En ef ég sný mér svo að einhverju aðeins skemmtilegra þá langar mig á benda á það að þegar að Sturla talar um að alþingismenn þurfi að fara að gera eitthvað þá er hann væntanlega að tala um að bregðast við ástandinu sem er í gangi, þ.e að koma til móts við mótmælendurnar með einhverjum hætti. Málin
halda alveg vatni það er bara spurningin um það hvort að þú viljir sjá gildið sem þau hafa. Bensínverðið er alltof hátt og það verður að lækka til þess að fólk hafi yfirleitt efni á því að reka bílana sína, málið er nefnilega að það eiga ekki allir sand af seðlum og þá skiptir óendanlega miklu máli að ríkið sjái að sér og minnki álagið á bensínið. Hvíldartíminn er líka svolítið óhentugur svo að maður tali pent, því að erfitt getur verið að ætla sér að samhæfa keyrsluna og hvíldina miðað við aðstæðurnar hverju sinni. Þessar 4,5 klst sem þú mátt vinna við án hvíldar fara ekkert endilega í það að keyra
heldur getur hann að hluta til farið í það að ferma bílinn og annað viðhald sem inniheldur sáralitla keyrslu. Þetta er næstum eins og að segja að þú farir
og þrífir og bónir bílinn þinn, það taki 3 og hálfan tíma, svo langi þig til þess að fara út á rúntinn en mátt þá ekki keyra í nema klukkutíma ellegar fáiru
heavy sekt.
Solomon
April 25th, 2008 at 20:59
Vá…. flott blogg!
Var að bíða eftir svona… Einhver sem nennir að skoða málið fyrir alvöru án þess að vera koma með óþarfa sleggjudóma eða alþýðuskýringar…
Fáir eiga auðvelt með að koma frá sér orði á vitsmunalegan hátt, þess vegna mikilvægt að hafa einhvern sem hægt er að hlusta á…
Þorsteinn P. Axfjörð
April 25th, 2008 at 21:04
Þakka þér fyrir að vera eini maðurinn sem ræðir þetta mál af einhverju viti. Ég er hjartanlega sammála þér.
kveðja
Eyjoi Ingvarsson
April 25th, 2008 at 22:50
góð grein hjá þér, þetta eru bara staðreyndir málsins en mér finnst að þegar ráðist er á lögregluna eins og gerst hefur ítrekað í þessu máli, ætti að liggja við mjög þung refsing. Þeir sem tala um lögregluríki um leið og lögreglan þarf að verja sig og við skulum ekki gleyma því Í VINNUNNI SINNI skulu bara hugsa sig um, hvernig væri ef þeir bökkuðu alltaf, hörfuðu, það er ekki erfitt að sjá hvernig það myndi enda
Siggi
April 25th, 2008 at 23:20
Nú ætla ég svo sem ekkert að fara að blanda mér mikið í umræðuna um hver var “vondi kallinn” í þessu máli. Ég held það þurfi tvo til að hlutirnir fari svona úr böndunum eins og gerðist þarna.
En ég vildi aðeins gera smá athugasemd við þetta hérna:
“Ríkið tekur fasta krónutölu á hvern lítra (um 52 krónur ef mig misminnir ekki) og svo auðvitað virðisaukaskatt. Heimsmarkaðsverðið hefur hækkað og svo hefur auðvitað gengið lækkað. En hvað á ríkið að gera í því ? Ríkið stjórnar hvorki heimsmarkaðsverðinu, né genginu, þannig að þeir eru að beina sínum mótmælum í kolranga átt.”
Umm, hvað á ríkið að gera? Ég sé strax tvo möguleika, lækka þessa föstu 52 krónur sem eru teknar af hverjum líter, eða afnema/lækka virðisaukaskattinn?
Heimsmarkaðsverðið er bara brandari miðað við þessa upphæð sem ríkið er að taka af hverjum líter. Þetta er það sem ríkið gæti gert, ekki satt? Ég væri alveg til í að fá t.d. 52 krónu lækkun á bensínlíterinn :-)
Svo já, ég held að vörubílstjórar og aðrir geri sér alveg grein fyrir að við höfum ekki áhrif á heimsmarkaðsverðið, en hinsvegar ef ríkisstjórnin hefði áhuga á að koma til móts við vörubílstjóra og hinn almenna borgara, að þá er fullt fullt sem hún gæti gert.
Sem hinsvegar gerist ekki, við vitum það líka :-)
Guðmundur M.
April 25th, 2008 at 23:28
Slayer bendir hér á myndband að ofan málflutningi sínum um lögregluofbeldi til stuðnings. Undarlegt þar sem myndbandið sýnir einmitt mæta vel,í upphafi,hversvegna lögregla þurfti að kippa nokkrum einstaklingum úr hópnum og af svæðinu. Á myndbandinu má sjá þegar lögregla fjarlægir startsprey brúsa úr höndunum á honum. Það voru þarna nokkrir menn búnir að vígbúast með slíku ásamt WD-40 brúsum. Það þarf engan kjarneðlisfræðing til að átta sig á að slíkur eldfimur vökvi,bensínsstöð og vitskertur einstaklingur eru hættuleg blanda. Lögregla var að gera það eina rétta þarna,vernda almenning á staðnum og sjálfa sig fyrir þessari hættu.
Framganga lögreglumanna með piparúðan var fullkomlega eftir viðurkenndum starfsferlum og algerlega í takt við þjálfun þeirra. Þarna eru vel þjálfaðir einstaklingar að framkvæma hluti sem þeim er skipað að gera og gera þá eins og fyrir þeim er lagt. Að halda að viðvörunaróp þeirra hafi verið persónuleg sturlun lýsir eingöngu vanþekkingu á störfum lögreglu.
Annars mjög góður pistill hjá síðuhaldara og vonandi nær vinur þinn sér fljótt.
Ívar
April 25th, 2008 at 23:52
Siggi vill hér að ofan að bensíngjald verði afnumið eða lækkað.
Þetta gjald rennur af miklum hluta, ef ekki allt, til viðhalds vegakerfisins og uppbyggingu. En þungaflutningar og stórir trukkar eru einmitt hvað virkastir við að eyða bundnu slitlagi og öðrum umferðarmannvirkjum. Það gerist td. furðuoft hér á landi að stórir trukkar keyri undir brýr með of háan farm og skemmi þau mannvirki. Einhversstaðar verður fjármagnið til þess að laga þessar skemmdir að koma..
Siggi
April 26th, 2008 at 00:21
Ekki spurning, Ívar. Ekki verða þessir peningar til af sjálfu sér.
En er ekki sé nógu dýrt að reka ökutæki á Íslandi, með tryggingarnar, alla skattana, hliðarskattana og skattaskattana, svo ekki sé minnst á “samkeppnina” í trygginga- og olíumálum.
Mér datt bara í hug hvort möguleiki væri á að létta álögur af almenningi á einhvern hátt, til dæmis í þessu formi?
Enda var það nú kannski ekki málið, heldur spurningin hvort ríkið GÆTI gert eitthvað, og hvort vörubílstjórar væru að beina spjótum sínum að réttum aðilum.
Ég er hinsvegar nógu raunsýnn til að vita að þessar álögur koma ekki til með að lækka á næstunni, kallaðu mig svartsýnan ef þú vilt :-)
siggi
April 26th, 2008 at 01:26
ég hef eitt um þessa grein að segja ;betra er að vera heimskur og þegja en tala og taka allan vafa af; . hvort viltu mæta atvinnubílstjóra sem er búinn að aka í 12-14 klst svo hann geti brauðfætt sína fjölsk. eða fara upp á slysó vitandi að læknirinn sem annast líf þitt er búinn að vinna í 16-18 klst, einsog nú tíðkast þar.
Árni Gunnar
April 26th, 2008 at 01:44
@siggi:
Ég vil hvorugt, það er alveg á hreinu! Það er vísindalega sannað að framleiðni og geta í vinnu fer dvínandi eftir því sem vaktin verður lengri og svefninn minni. Þess vegna vil ég hvorki mæta bílstjóra sem hefur keyrt of lengi, eða leita mér lækninga hjá lækni sem hefur sofið of lítið.
Ég er að reka lítið fyrirtæki, og ég legg áherslu á það við mína starfsmenn að vinna ekki of mikið, þó að verkefnastaðan okkar gefi tilefni til annars. Frekar að vinna temmilega mikið, afkasta vel þann tíma sem þú ert í vinnunni og slaka vel á þess á milli. Þá fæ ég ánægðari og betri starfsmenn og þar af leiðandi ánægðari viðskiptavini.
@Siggi:
Það er alveg á hreinu að þessar 52 krónur eða hvað það nú er minnka ekki. Það er alveg klárt. Það þarf að fá þessa peninga til að viðhalda þessum vegum og vegleysum sem við eigum.
Varðandi það að lækka VSK af bensíni, þá kemur það atvinnubílstjórum ekki til góða, því þeir nýta skattinn sem innskatt á móti útskattinum sínum.
@Slayer:
Aðgerðir lögreglunnar þegar búið var að ryðja götuna voru full grófar að mínu mati. Þeir þurftu ekki að sækja svona langt inn á bílastæði bensínstöðvarinnar til að fá vinnufrið.
Það söfnuðust þarna saman unglingar, sem hafa ekkert með mótmæli atvinnubílstjóra að gera, bara til að búa til vandræði, ekkert annað. Það var mikill múgæsingur í gangi og til að hafa stjórn á honum, þarf að sækja mestu æsingamennina út úr hópnum og þá er auðveldara að róa restina. Og mér sýndist þetta vera það sem lögreglan gerði þarna.
Annars vil ég þakka hlý orð í garð þessa pistils. Ég reyni að líta raunsætt á flesta hluti, og á auðvelt með að setja mig í hlutlausu sporin.
Ragnar Daði
April 26th, 2008 at 03:57
Sælir
Ætla hér að reyna varpa ljósi á hina hliðina
Þessi pistill er að vissu leiti málefnalegur en hann hallar aðeins um of á aðra hliðina í þessu máli.
Ég er sammála þér með nokkra hluti en mjög ósammála með marga og því miður þá sleppir þú nokkrum grundvallar punktum.
Ef við byrjum á byrjun. Verktakar bjóða í ákveðin verkefni og gefa sér upp forsendur hvernig það sé hægt að vinna það verkefni. Þannig að þeir fá strax ákveðna krónutölu til að vinna verkefnið og restin er laun. EF við lauslega reiknum Olíu hækkunina frá áramótum fyrir svona trukka bílstjóra þá kostaði Olían í byrjun árs um 130 kr en kostar í dag um það bil 160. Þessir trukkar eru með um 550 lítra tank og hann eyðist á einum og hálfum degi sem sagt 2 tankar á 3 dögum. Lauslega reiknað þá er auka kostnaður trukkabílstjóra 300.000kr á mánuði vegna gengislækkunnar og hækkandi heimsmarkaðsverðs.
Þar sem þeir eru þegar bundnir samningum verða þeir að taka þessa hækkun á sig og þurfa því að borga með vinnunni sinni.
Annar punktur er að öll fyrirtæki sem reka bíla lenda í meiri kostnaði, Fyrirtækin þurfa meiri pening til að reka fyrirtækið út af auknum rekstrarkostnaði og velta hækkuninni út í verðlagið.
Þegar stór hluti fyrirtækja þarf að gera það þá hækkar flest allar vörur og þar með dregur það verðbólguna með sér upp.
Og allir landsmenn lenda því í hækkunum. Stór hluti vinnandi fólks fékk launahækkun í byrjun árs en sú hækkun hverfur öll í ljósi hækkana á bensínið.
Sambandi við það að ríkið taki fasta krónutölu á hvern lítra eða þessar 52kr+ vsk eða umþað bil 70kr. Það er í lagi að þeir sem noti vegina borgi þá en því miður þá er hlutfallslega stór hluti þessa peninga notaður í önnur verkefni. Bensínið fór í stækkun Landspítalans háskólasjúkrahúss. Sundabraut hefur verið frestað vegna þenslunnar og á meðan eru olíupeningarnir notaðir í annað og auka þenslu annarstaðar og byrja ekki á sundabraut fyrr en það er búið að safna meiri olíupeninga. Hingað til hefur ALLTAF verið afgangur af olíupeningnum þannig að annað hvort getur ríkið hunskast til að taka minna af olíu peninunum eða lagt meira í vegi og vega mannvirki.
Það er samt annar punktur sem þú ert að gleyma, Eina sem ríkið getur stjórnað af bensíni er í raun þessar álögur þannig að sjálfsögðu beita trukka bílstjórar sér fyrir því að þær verði lækkaðar.
Þegar svona SNARPAR breytingar verða í verði á bensíni á olíu þá eru það langflestir íslendingar sem verða fyrir barðinu á þeim. Beint eða óbeint og þess vegna getur það verið til hagsbóta að lækka álögur til skammstíma heldur en að velta verð hækkunum út í verðlagið. Það er það sem þeir eru að beita sér fyrir og þann punkt að stór starfstétt gæti orðið illa úti ef það gerist ekki eitthvað fljótlega.
Sambandi við hvíldartíma ákvæðið.
Því miður þá virkar ekki að taka ákveðna hluti úr reglugerð og varpa þeim hér algjörlega úr samhengi. Mæli ég með fyrst að kynnast öllum reglum um þessa skífu. Þegar flutningabílstjóri er að keyra til akureyrar þá leggur hann ekkert bara af stað. Leið og hann hreyfir bílinn setur hann skífuna af stað og hún byrjar að tikka. Hann þarf svo að lesta bílinn, hann gæti þurft að ná í hluti til þess að fara með norður og alltaf tikkar skífan.
Eftir helling af vinnu þá leggur hann af stað.
Það eru ekki margir staðir til að stoppa á á leiðinni norður.
Borganes síðan ekkert fyrr en í staðarskála, stuttu seinna kemur blöndós og eiginlega ekkert þar á eftir nema akureyri.
Vissulega er rétt hjá þér að ef það eru 5 mín í brú þá er það löglegt það er það ekki þegar við erum að tala um 20 til 30 mín og við því liggja háar sektir að brjóta þessar skífu reglugerðir.
Mótmælin snúast um það að Bílstjóri sem er búinn að vera vinna þarf að keyra í klukkutíma hvíla sig í 45 mín því hann nær ekki í staðarskála síðan þarf hann að keyra á blöndós og hvíla sig aftur í 45 mín afþví að hann nær ekki á akureyri og útaf því að það bættist við klukkutími þá kemur hann klukkutíma seinna til akureyrar og þarf að taka 11 tíma hvíld og getur því ekki lagt af stað fyrr en um 10-11 eða réttara sagt bryjað að vinna og þá þarf hann að lesta bílinn og nær ekki í bæinn á tilsettum tíma því það þarf að senda bílinn aftur norður, lesta hann. Ef það væru fleiri áningarstaðir gætu trukkabílstjórar ekið þanngað tekið pásu og síðan ekið allaleið á akureyri í stað þess að þurfa að stoppa 2-3 á leiðinni.
í sam bandi við það að skipta pásunni upp í 3 hluta þá verður hver hluti að vera 15 mínútur annars gildir það sem enginn pása. 14 mínútna pása er sama og enginn pása þannig ef þú ferð of fljótt af stað þá bara aumingja þú.
Heildar skífu reglugerðirnar eru svo langar og strangar að það hálfa væri nóg. Löggan getur stoppað vörubíl og gert eftirlit og skoðað skífuna, ef það er eitthvað vitlaust á henni veit um um tilfelli up á 200.000kr sekt.
Langt er seinasta banaslys vegna sofandi trukkabílstjóra gerðist en þau hafa verið nokkur upp á síðkastið og í öll skiptin var það í fólksbíl eða jeppa sem eitthver sofnaði. Seinasta slysið var fyrir austan ef ég man rétt og þá var það af öðrum örsökum en of mikillar vinnu.
Ég er frekar tilbúinn að mæta vörbílstjóra sem kemst til akureyrar á 8-9 tímum heldur en manni á trukki sem þarf að keyra hraðar vegna þess að öll stoppinn gerðu ferðinnar til akureyrar svo langa að hann er að rembast við að ná 11 tímum.
Sambandi við mótmælin þá eru þau vissulega báðum að kenna en lögreglan fór fram úr öllu hófi, hún braut meðalhófsregluna endalaust og framdi sjálf lögbrot marg oft.
Flutningabílstjórar koma sér saman 5 um morguninn en þá er lögga byrjuð að chase-a þá.
Um 9 leitið eru leggja þeir á löglegt hvíldarplan við olís stöðina í norðlingaholti.
Strax þá er löggan mætt á svæðið til þess að taka þá fyrir mótmæli í löglegu bílastæði.
Milli 9 og 10 bætist í hópinn og eins og venjulega fara mótmælendur eftir því sem löggan segir og um 10:30 eru allir bílar farnir af veginum nema 1. Mikið er af almenningi á svæðinu en, vissu lega eru það hæpin rök en löggan tekur af skarið og lokar sjálf svæðinu klukkan 11:00. Þá er 1 vörubíll á veginum aðrir eru löglega lagðir fyrir utan bíla almennings sem lagðir voru út í kannti.
Það sérst strax hver ætlun lögreglunar er þegar eigandi seinasta vörubílsins sættist og ætlar að færa bílinn.
Lögreglan neitar honum ólöglega um það að fara í inn í bílinn sinn. Lögreglan hafði engan rétt til þess og engan dómsúrskurð um það að hún mætti leggja hald á það ökutæki.
Þegar maðurinn reynir að útskýra rétt sinn fyrir lögreglunni þá er hann tekinn niður og þarf 5 lögreglu menn til þess að handtakamannin og hann streittist ekkert á móti. Lögreglan leggur ólöglega hald á tækið því hún tekur lykla eigandans og leggur hald á tækið.
Við það ætla 3 vörubílstjórar að reyna koma til þess handtekna en er varnað af 6 óeirðarlögreglumönnum við að kemur þessi vinur þinn og byrjar að spreyja yfir allan hópinn en þar stóðu konur, börn, aldraðir með flutningabílstjórum. Hópur sem ógnaði ekki neinum, stóð ekki í neinum hótunum, ögraði ekki neinum og í raun stóð ekki nein ógn af. Yfir hann er spreyjað pipar úða og um leið brýtur félagi þinn meðalhófsreglu lögreglunnar. Allt vegna þess að 3 vörubílstjórar reyndu að nálgast hinn handtekna.
Klukkan 13:00 þá sýnir sjónvarpið loftmyndir úr þyrlunni sem var þarna á sveimi og einungis lögreglubílar voru á veginum og þá strax hefði verið hægt að opna veginn. Nei lögreglan heldur áfram og byrjar að picka nokkra úr hópnum, menn sem stóðu þarna og voru einungis að tala saman og einginn ógn stafaði af eru rifnir niður og handteknir fyrir þær sakir að þeir eru taldir hafa lykla af bílum sem eru löglega lagðir. Lögreglan handtekur menn fyrir þær litlu sakir en leyfir unglingunum að vera þarna grítandi í sig eggjum.
Þarna handtekur lögreglan saklausa menn sem í raun gerðu ekkert rangt. Lögreglan ætlar sér að leggja hald á alla bílana og það ÓLÖGLEGA.
Ef við komum að bíl sturlu þá brýtur hún rúðu, eyðileggur drifskaft í ásamt því að brjóta spoilera og rispa bretti.
Lögreglan því eyðileggur bíla og tekur þá ófrjálsri hendi.
Er löggunni heimilt að brjóta lög, bara vegna þess að hún og almenningur er búinn að fá nóg af trukkabílstjórum.
lögreglan verður að haga sér og ég sé ekki betur að hún hafi brotið jafnmörg eða fleiri lög heldur en trukkabílstjórnir en það taka mjög fáir eftir því vegna þess að það eru þó nokkrir reyndar all margir sem eru orðnir pirraðir á vörubílstjórum
Ef ég fæ að bæta við einum punkt enn í sambandi við lögreglu ofbeldi þegar gaurinn kastar steini og hann lendir á lögregluþjóninum þá er það að vissu leiti óvart og veit ég ekki til þess að sá aðili sem kastaði steininum tengist trukkabílstjórunum á eitthvern átt.
Sá aðili tekur upp stein og kastar að lögreglu hópnum. Lögreglu maður labbar í raun á steininn og er þetta að vissu leiti óhapp. Leið og hann sér steininn lenda á lögreglu mannininum þá reynir hann að koma sér í burtu og sér lögguna og byrjar að hlaupa.
Hann á aldrei möguleika og gerir það eina rétta, stoppar og gefur sjálfan sig fram. Hann er laminn með kylfu, grítt í jörðina og haldið áfram að lemja hann þar. Svo er aðilinn handtekinn.
Vissulega átti hann skilið makleg málagjöld en það þýðir ekki að lögreglan meigi taka út reiði sína á honum. EF lögreglan hefði nú bara handtekið sig þar sem hann gaf sig fram stoppaði gerði ekki neitt og leifði lögreglunni að lemja sig.
Annað dæmi um of harkalega aðgerðir lögreglunnar.
Sambandi við hitt atvikið þá á sá maður skilið málgjöld fyrir gjörðir sínar þar sem hann ræðst hreinlega á lögregluna og gerir það vitandi hvar höggið myndi lenda.
Að ráðast á löggunna er ég samt alfarið á móti.
Ég vona að eitthver hafi lesið þetta allt en ég vona að það hafi gefið smá innsýn á hina hliðina
Árni Gunnar
April 26th, 2008 at 14:10
Sæll Ragnar, þetta komment var næstu lengra en bloggfærslan mín … :)
Ég er þér sammála að erfitt er að taka úr hvíldartímareglugerðinni úr samhengi og segja að allt sé í lagi, þess vegna linkaði ég á hana fyrir fólk til að skoða.
Mér finnst hún líka vera soldið flókin og mætti vera sveigjanlegri vegna sérstakra aðstæðna hérna á Íslandi. En þessi mótmæli sem bílstjórarnir hafa stundað síðasta mánuðinn eru alveg úr jafnvægi við því sem þeir vilja ná fram.
Það væri örugglega hægt að sannfæra samgönguráðherra um að slaka aðeins á tímamörkunum og lækka sektarákvæðin, þá held ég að menn yrðu almennt sáttari við þetta.
Þeir fengu fundi með bæði samgönguráðherra og fjármálaráðherra, en það virtist ekki duga til. Þeir hefðu kannski átt að fá með sér vana samningamenn til að halda fram þeirra málsstað. Miðað við hvernig Sturla hefur staðið sig í viðtölum við fjölmiðla, þá hefði það verið góð hugmynd held ég.
Kristinn R
April 27th, 2008 at 23:36
Hvað með lögguna sem sagði við fréttamanninn að það mætti sleppa formálanum við spurninguna um aðgerðir.”Bíddu nokkrar mínútur,þá sérðu aðgerðir”. Það var greinilega búið að ákveða “aðgerðir”, og að beita vopnum á ÓVOPNAÐAN mannfjölda er eingöngu gert eftir fyrirskipun að “OFAN”
Ég reyndar vorkenni löggunni sem gekk vasklega fram, öskrandi GAS GAS GAS. Á youtube.com er komið myndband sem heitir GAS-MAN,og eru fleiri þúsundir búnir að skoða.
Þessi lögga á sér ekki viðreisnar von ef hann er t.d. á gangi í miðbænum, eða úti að skemmta sér. Hann er kominn með viðurnefnið GAS-MAN.