Bush’s War
Ég er búinn að vera veikur í tæplega viku. Gulla var svo yndisleg að bjóða mér í Spa meðferð á Hótel Sögu síðastliðinn föstudag og svo út að borða. Ég slappaði svo vel af að allar varnir líkamans opnuðus og vírusarnir streymdu inn. Strax um kvöldið var ég orðinn slappur, meikaði þó frábærann mat á Austur Indíafélaginu, en svo var það bara búið spil.
Þegar ég verð svona veikur, þá horfi ég á sjónvarpið … og það mikið. Sem betur fer átti ég slatta af efni sem ég hafði ekki haft tíma til að horfa á og tók mig til í vikunni og byrjaði á listanum.
Á þriðjudaginn horfði ég á tveggja þátta seríu frá PBS sjónvarpsstöðinni í Bandaríkjunum sem heitir Bush’s War. Vá hvað hægt er að taka margar rangar ákvarðanir í röð … úff … það var alveg svakalegt að horfa á þetta. Flest allt sem þeir hafa tekið sér fyrir hendur í Íraq hefur verið röng ákvörðun. Það er alveg magnað.
Ef G.W. Bush væri forstjóri einkafyrirtækis, þá væri löngu búið að reka manninn, og alla hans meðreiðarsveina.
Þegar ég var að horfa á þetta, þá rann soldið upp fyrir mér. Ég er einfaldur og barnalegur. Mér bara datt ekki í hug að fólk hagaði sér svona. Ég bara skil ekki svona. Menn fóru í stríð við Írak … aþþí bara. Ég vissi það svo sem, en þessir þættir settu þetta bara í svo magnað samhengi, ég fékk þetta allt í réttri tímaröð eins og það gerðist, með viðtölum við fólk sem var á staðnum.
Ég meina … strax 12. september 2001, degi eftir árásirnar á tvíburaturnana, þá segir Donald Rumsfeld varnarmálaráðherra eitthvað á þessa leið: “Hvernig getum við dregið Írak inn í þetta?”. Án nokkurra sannana eða neitt. Aþþí bara.
En það var rosalega gaman að horfa á þetta … dagurinn var búinn áður en ég vissi af …
Ef þú ætlar að horfa á þetta, þá myndi ég leggjast í veikindi fyrst … þetta eru rúmlega 5 tímar … en það er hægt að horfa á þetta á síðu PBS.
Æi hvað er gott að búa á Íslandi stundum … og vinna í tölvubransanum, ekki í stjórnmálum.