— arnigunnar.net

Archive
April, 2008 Monthly archive

Ég hef nú ekki skrifað um þetta áður, en ég hef verið á móti þessum aðgerðum síðan þeir byrjuðu á þessu fyrir um mánuði síðan.

Ég get svo sem skilið að þeir séu ekki sáttir við sína stöðu, ef öll aðföng myndu hækka í mínu fyrirtæki yrði ég ekkert sáttur við það, en ég þyrfti þá að velta því yfir á mína viðskiptavini, það er ekkert flóknara en það.

Mér finnst líka eins og þeir sjálfir hafi misst sjónar á því hverju er verið að berjast fyrir. Þegar þessi Sturla er spurður þessa dagana af fréttamönnum vælir hann bara um að alþingismenn þurfi að fara að gera “eitthvað”. Ekki orð um bensínverð eða hvíldartíma, enda held ég að hann sé farinn að sjá að þau mál halda ekki vatni.

Hingað til sýnis mér trukkabílstjórarnir halda uppi 2 aðal kröfum. Lækka bensínverð og losa um reglugerð um hvíldartíma á vinnudögum.

Bensínverðið

Bensín og olía hafa hækkað umtalsvert síðustu mánuði. Það er staðreynd sem ekki er hægt að fela sig á bakvið. Ríkið tekur fasta krónutölu á hvern lítra (um 52 krónur ef mig misminnir ekki) og svo auðvitað virðisaukaskatt. Heimsmarkaðsverðið hefur hækkað og svo hefur auðvitað gengið lækkað. En hvað á ríkið að gera í því ? Ríkið stjórnar hvorki heimsmarkaðsverðinu, né genginu, þannig að þeir eru að beina sínum mótmælum í kolranga átt.

Ég sá viðtal við Sturlu í Kastljósinu þar sem hann sagði að bensínverðið ætti að vera sambærilegt hérna og í Bandaríkjunum. Ég reiknaði út að líterinn af bensíni í Bandaríkjunum er rétt undir dollar ($ 0,94). Sem á gengi dagsins í gær er rétt tæplega 70 krónur. Verðið hjá OB í dag er 148,9 kr. Rúmlega tvöfalt meira. Þó að ríkið myndi afnema olíugjaldið, þá myndi það ekki nægja.

Þetta er svona dæmigert frá þessum bílstjórum. Það er eins og þeir viti ekkert hvað þeir eigi að segja eða gera. Ekkert skipulag, bara MÓTMÆLA!

Hvíldartíminn

Ég tók mig til og fann reglugerðina sem þeir eru svo ósáttir við. Og það er áhugaverð lesning. Á hverjum 4.5 tímum í vinnu verða þeir að hvíla sig í 45 mínútur. Þeir geta skipt þessum 45 mínútum í þrennt hvenær sem er á þessum 4.5 tímum. Þannig að rökin um að þeir þurfi að stoppa uppi á miðri Holtavörðuheiði til að taka hvíld fara út um gluggann.

Þeir mega vinna 9 tíma á dag, en 10 tíma tvisvar í viku. Ég verð bara að segja fyrir mig að ég er ekkert sérstaklega spenntur fyrir því að mæta bílstjóra á stórum bíl sem hefur verið að keyra mikið lengur en þetta.

Svo rakst ég á aðra grein í reglugerðinni sem hljóðar svona:

Ökumanni er heimilt að víkja frá ákvæðum reglugerðarinnar að því tilskildu að umferðaröryggi sé ekki teflt í tvísýnu, þurfi hann að ná hentugum áfangastað, enda sé það nauðsynlegt til að tryggja öryggi fólks eða til þess að koma í veg fyrir tjón á bifreið eða farmi. Noti ökumaður þessa heimild, skal hann skrá í ökurita með hvaða hætti og hvers vegna það var gert.

Þarna segir nú bara hreint út að þeir megi lengja aksturstímann ef á þarf að halda, ef þeir eru uppi á miðri heiði eða á þröngum vegi.

Ég hef ekki heyrt frá þessum bílstjórum nákvæmlega hvað það er við þessa reglugerð sem þeir eru ósáttir við. Þeir mættu koma því betur frá sér svo maður geti gert sér betur grein fyrir því hverju þeir eru að berjast fyrir.

Ofbeldið

Mér sýnist að það sem gerðist í gær sé alveg skírt dæmi um að trukkabílstjórarnir eru búnir að missa tökin á ástandinu. Þetta hefur verið að stig magnast og þetta var í raun óumflýanlegt að til átaka skyldi koma.

Bílstjórarnir fóru ekki að fyrirmælum lögreglu um að færa bílana strax. Yfirklór þeirra um að það hafi verið fólk á götunni er hjákátlegt. Þegar svo lögreglan ákveður að rýma svæðið til að koma bílunum í burtu sjálf, fer allt í bál og brand.

Ég held nú samt að lögreglan hafi gengið aðeins of langt í gær að tryggja vinnufrið við að færa bílana í burtu. Það hefði verið alveg nóg að koma fólkinu af götunni og inn á bílastæðið hjá Olís, en algjör óþarfi að vera að elta fólk lang aftur fyrir bensínstöðina.

Sleggjudómar

Svo finnst mér alveg magnað hvað fólk er fljótt að álykta um persónur sem það sér í örstutta stund í sjónvarpinu. Sá lögreglumaður sem fékk steininn í hausinn og leiddi línuna með piparúðabrúsa þegar lögreglan hóf aðgerðir sínar er góður vinur minn. Ég hef þekkt hann í næstum 10 ár og þetta er svo rólegur og yfirvegaður einstaklingur að ég þekki fáa aðra sem ég myndi treysta til að halda haus í svona aðstæðum.

En fólk er búið að dæma hann og félaga hans sem ofbeldissjúka brjálæðinga, sem eru í sérsveitinni bara til að fá að berja á fólki. Ekkert gæti verið lengra frá sannleikanum. Fólk ætti að gæta orða sinna á bloggi og víðar.

Þetta var bara tú möts … vildi ekki vera í hans sporum á morgun. Verður líklega lítið um bæjarferðir hjá kappanum næstu daga.

Ég er búinn að vera veikur í tæplega viku. Gulla var svo yndisleg að bjóða mér í Spa meðferð á Hótel Sögu síðastliðinn föstudag og svo út að borða. Ég slappaði svo vel af að allar varnir líkamans opnuðus og vírusarnir streymdu inn. Strax um kvöldið var ég orðinn slappur, meikaði þó frábærann mat á Austur Indíafélaginu, en svo var það bara búið spil.

Þegar ég verð svona veikur, þá horfi ég á sjónvarpið … og það mikið. Sem betur fer átti ég slatta af efni sem ég hafði ekki haft tíma til að horfa á og tók mig til í vikunni og byrjaði á listanum.

Á þriðjudaginn horfði ég á tveggja þátta seríu frá PBS sjónvarpsstöðinni í Bandaríkjunum sem heitir Bush’s War. Vá hvað hægt er að taka margar rangar ákvarðanir í röð … úff … það var alveg svakalegt að horfa á þetta. Flest allt sem þeir hafa tekið sér fyrir hendur í Íraq hefur verið röng ákvörðun. Það er alveg magnað.

Ef G.W. Bush væri forstjóri einkafyrirtækis, þá væri löngu búið að reka manninn, og alla hans meðreiðarsveina.

Þegar ég var að horfa á þetta, þá rann soldið upp fyrir mér. Ég er einfaldur og barnalegur. Mér bara datt ekki í hug að fólk hagaði sér svona. Ég bara skil ekki svona. Menn fóru í stríð við Írak … aþþí bara. Ég vissi það svo sem, en þessir þættir settu þetta bara í svo magnað samhengi, ég fékk þetta allt í réttri tímaröð eins og það gerðist, með viðtölum við fólk sem var á staðnum.

Ég meina … strax 12. september 2001, degi eftir árásirnar á tvíburaturnana, þá segir Donald Rumsfeld varnarmálaráðherra eitthvað á þessa leið: “Hvernig getum við dregið Írak inn í þetta?”. Án nokkurra sannana eða neitt. Aþþí bara.

En það var rosalega gaman að horfa á þetta … dagurinn var búinn áður en ég vissi af …

Ef þú ætlar að horfa á þetta, þá myndi ég leggjast í veikindi fyrst … þetta eru rúmlega 5 tímar … en það er hægt að horfa á þetta á síðu PBS.

Æi hvað er gott að búa á Íslandi stundum … og vinna í tölvubransanum, ekki í stjórnmálum.

Fékk þetta sent frá Gunnari frænda … ansi sniðugt …

Sjá viðtal á eyjar.net :)