— arnigunnar.net

Archive
February, 2008 Monthly archive

Ég skimaði yfir þennann pistil hjá Össuri Skarphéðinssyni áðan, þar sem hann gjörsamlega hraunar yfir aumingja Gísla Martein Baldursson borgarfulltrúa.

Ég verð nú að segja að þetta er nú ekki ráðherra sæmandi að skrifa svona, þó hann sé að skrifa þetta seint á nóttunni.

Upphefur Bingó, en drullar yfir Gísla Martein … ég ekki skilja Össurinn í dag.

Ég rakst á þessa umfjöllum um það sem er að gerast í Dubai þessa dagana og næstu árin. Þeir eru gjörsamlega klikk þessir kallar þarna …

Jæja Villi minn … þinn tími er kominn … golftíminn þ.e.a.s.

Þetta er orðið gott hjá þér í pólitíkinni … það er öruggleg hægt að finna þér sendiherrastöðu eða eitthvað …

Það er langt síðan ég hef séð svona marga spilandi Valsmenn í landsliði Íslands í knattspyrnu. Þeiru eru að vísu án atvinnu manna, en mér er slétta sama, mjög gaman að sjá þetta:

Lið Íslands: Kjartan Sturluson, Birkir Már Sævarsson, Atli Sveinn Þórarinsson, Ragnar Sigurðsson, Hermann Hreiðarsson (Bjarni Ólafur Eiríksson 73.) – Eyjólfur Héðinsson (Pálmi Rafn Pálmason 65.), Bjarni Guðjónsson, Stefán Gíslason, Jónas Guðni Sævarsson, Tryggvi Guðmundsson – Gunnar Heiðar Þorvaldsson (Baldur I. Aðalsteinsson 73.)

6 stykki sem komu við sögu í leiknum gegn Armeníu í dag …

Það fór fimm ára piparkökudrengur í leikskólann í morgun, ekkert smá glaður. Hafði reyndar smá áhyggjur af því að kennararnir myndu borð’ann … en ég held að það verði nú ekki, ég vil helst fá hann heim í heilu lagi.

Svo er hann að fara í tvöfalt öskudagsafmæli í dag. Baldur og Elísa eiga afmæli og halda heljarinnar afmælisveislu í Logafoldinni. Hann er alveg rosalega spenntur fyrir því stubburinn.

Baldur verður víst einhver fígúra úr Transformers … spurning hvort hann borði piparkökuna … :o

Jámm … frúin á heimilinu er komin með vinnu. Var í viðtali í síðustu viku, og hitti svo verðandi vinnuveitendur sína í morgun aftur, og þeir bara réðu hana á staðnum.

Byrjar föstudaginn 15. febrúar hjá Póstinum (og nei, ekki bera út póst) … :)

Til hamingju ástin mín !