Hlynur Snær er ástfanginn
Já … hann sá ástina sína í morgun. Það var verið að endursýna Eurovision síðan í gærkvöldi og hann sá Ragnheiði Gröndal syngja þar lag eftir Möggu Stínu.
Og þvílíkt sem hann féll í stafi … það kiknuðu hnjáliðir og allt saman, hann bara lagðist í gólfið.
Vildi fá að vita hvort hún væri gift, og ef hún væri á lausu, þá ætlar hann að giftast henni. Hún er svo falleg og syngur svo vel.