— arnigunnar.net

Þetta hefði mér nú aldrei dottið í hug

… en ég fíla einn Framsóknarmann ! En bara einn.

Birkir Jón pókerspilari er flottur. Hann spilaði póker um helgina, lagði undir 20 kall og fékk 38 kall. Nettó 18 kall í gróða. Það er nú bara fínt.

Fyrr um daginn gerði hann nákvæmlega sama hlutinn, bara annað spil … og tapaði reyndar þar. En fjölmiðlarnir voru nú ekki að missa sig yfir því …

Og það er nú meira hvað Vísir.is er í herferð gegn blessuðum manninum … fyrirsögn á forsíðunni sem lifir í marga daga um að hann hafi grætt tugi þúsunda á fjárhættuspili. Ótrúlega villandi fyrirsögn, svo ekki sé nú meira sagt.

Svo dúkka náttúrulega upp spilafíklarnir … eða samtök þeirra öllu heldur. Mér er nú til efs að samtök alkóhólista hafi stokkið fram þegar Davíð Oddsyni varð það á að fá sér aðeins meira en einn þegar Bridge hetjurnar okkur sneru heim með Bermúda skálina hér um árið.

Og spilafíkillinn í fréttinni á Vísi.is fullyrðir að Birkir Jón hafi tapað stórum fjárhæðum á fjárhættuspilum áður en þetta atvik komst í fréttirnar! Hvernig í andskotanum veit hann það? Það er að sjálfsögðu hægt að leiða að því líkum að hann hafi tapað peningum, en hvað kemur okkur það við? Ef hann á fyrir því, er þetta þá ekki bara hans mál?

Við strákarnir spilum reglulega, en ekki upp á svona upphæðir … enda ekki á þingmannalaunum. Eigum við þá von á því að vera snúnir niður í svaðið af Vísi.is eftir spilahelgi ?