— arnigunnar.net

Archive
January, 2008 Monthly archive

Þó þeir séu að spila með Bolton Wanderers.

Grétar Rafn Steinsson spilaði sinn fyrsta leik með Bolton á laugardaginn gegn Newcastle og var valinn í lið vikunnar á Soccernet síðunni. Þar höfðu þeir þetta að segja:

Icelandic right-back Guntar Steinsson made his debut for Bolton in the much-hyped return of the messiah match at St. James Park. The significance of the occasion may have been lost on the new signing but he went about the task in hand admirably, showing enough strength and solidity to suggest he will be a success in the Premier League. Just ask Damien Duff.

Greinilega ekki með hnífasett í bakinu hann Grétar ….

Það er verið að endursýna Ísland – Svíþjóð á EM í sjónvarpinu núna. Leikurinn var að byrja. Það eru núna næstum 3 tímar síðan leik lauk og ég er ennþá svekktur. Við spiluðum eins og höfuðlaus her í fyrri hálfleik og ég var þess fullviss um að þetta færi að detta hjá okkur í seinni. Alveg handviss.

En það varð ekki … ástandið bara versnaði ef eitthvað var.

Og ég barði svo oft í sófann að það hálfa væri nóg.

En það þýðir víst ekkert að væla yfir þessu, bara rífa sig upp fyrir laugardaginn og taka leikina sem við eigum um helgina. Það góða við þetta er jú að við getum nú varla spilað mikið verr sóknarlega en við gerðum í dag.

Annars var ég að dúndra inn nokkrum myndum áðan inn á Flickr síðuna. Jólamyndir og fleira. Mamma ætti að vera sátt við það.

Hlynur Snær í Almannagjá

Svo er kjálkinn bara allur að koma til. Er farinn að geta tuggið svona einfaldann mat, en það er vont ef ég þarf að bíta fast í eitthvað. Vona bara að þetta leggist á sinn stað þegar bólgan er alveg farin.

Fótboltafélagarnir reyndu eitthvað aðeins að bæta fyrir þetta og settu boltann tvisvar í andlitið á Gumma á þriðjudagskvöldið … en hann á eftir að fá eitt almennilegt frá mér :)

Enginn annar en ég getur tognað á kjálka !

Ökkla, hné og fleiri útliðum, já. En ekki kjálka. Magnað alveg.

Ég fór sem sagt á knattspyrnuæfingu í kvöld og var full ákafur í að stoppa Gumma í að skora mark. Setti hausinn fyrir skotið hans og fékk þennan líka flotta slynk á kjálkann.

Fór niður á Slysó og þar var tekin fjögur þúsund króna mynd af flottasta kjálka kvöldsins.

Sendur heim með huggandi orðum … taktu bara bólgueyðandi, og ekki borða og mat sem erfitt er að tyggja. Og gott að þú varðir skotið. Eins gott að jólin eru búin.

Sit hérna við tölvuna og er að reyna að tyggja einfalt og þurrt salt kex … gengur ekki vel. Er að horfa á Næturvaktina … og það er ferlega vont að hlæja.

Fékk þetta frá einni frænku minni … læt það flakka:

NÁMSKEIÐ FYRIR KARLA!!!

Allir velkomnir, aðeins fyrir karlmenn.

Athugasemd: Námskeiðin eru flókin þannig að aðeins átta geta sótt hvert námskeið. Hvert námskeið tekur tvo daga og efnið er eftirfarandi:

FYRRI DAGUR


HVERNIG Á AÐ FYLLA ÍSMOLABOX?

Skref fyrir skref með glærusýningu

KLÓSETTRÚLLUR VAXA ÞÆR Á KLÓSETTRÚLLUHALDARANUM?

Hringborðsumræður

MUNURINN Á RUSLAFÖTUM OG GÓLFI

Æfing með körfuefni(teikningar og módel)

DISKAR OG HNÍFAPÖR:FER ÞETTA SJÁLFKRAFA Í VASKINN EÐA UPPÞVOTTAVÉLINA?

Pallborðsumræður nokkrir sérfræðingar

AÐ TAPA GETUNNI

Að missa fjarstýringuna til makans Stuðningshópur

LÆRA AÐ FINNA HLUTI

Byrja að leita á réttum stöðum í stað þess að snúa húsinu við gargandi. Opin umræða

SEINNI DAGUR

TÓMAR MJÓLKURFERNUR; EIGA ÞÆR AÐ VERA Í ÍSSKÁPNUM EÐA Í RUSLINU?

Hópvinna og hlutverkaleikir

HEILSUVAKT; ÞAÐ ER EKKI HÆTTULEGT HEILSUNNI AÐ GEFA HENNI BLÓM

Powerpoint kynning

SANNIR KARLMENN SPYRJA TIL VEGAR ÞEGAR ÞEIR VILLAST

Sönn saga frá manninum sem spurði til vegar

ER ERFÐAFRÆÐILEGA ÓMÖGULEGT AÐ SITJA ÞEGJANDI MEÐAN HÚN LEGGUR BÍL?

Ökuhermir

AÐ BÚA MEÐ FULLORÐNUM; GRUNDVALLARMUNUR Á ÞVÍ AÐ BÚA MEÐ MÖMMU OG MAKA

Fyrirlestur og hlutverkaleikir

HVERNIG Á AÐ FARA MEÐ EIGINKONUNNI Í BÚÐIR

Slökunaræfingar,hugleiðsla og öndunartækni

AÐ MUNA MIKILVÆGAR DAGSETNINGAR OG AÐ HRINGJA ÞEGAR ÞÉR SEINKAR

Komdu með dagatalið þitt  í tímann

AÐ LÆRA AÐ LIFA MEÐ ÞVÍ AÐ HAFA ALLTAF RANGT FYRIR SÉR

Einstaklingsráðgjöf og samtöl