Í: Stjórnmál
24 Jan 2008Mér er misboðið í dag.
Ég er að vinna heima í dag og er með kveikt á sjónvarpinu og fylgist með fundinum í borgarstjórninni.
Þetta er ekki það sem ég vil sjá, að flokkurinn sem ég hef nánast alltaf kosið (1 undantekning) troði sér til valda hvað sem það kostar. Þetta er bara rugl.
Hingað til hef ég ekki verið neitt sérstaklega hrifinn af Degi B. Eggertssyni, en í dag er hann að tala á réttum nótum. Í stað þess að fara í vörn fyrir sig persónulega og sinn flokk, þá horfir hann á hlutina í stærra samhengi. Spunameistarar Samfylkingarinnar hafa greinilega fengið hann til að taka réttann pól í hæðina á meðan Sjálfstæðismenn virðast kæra sig kollótta um hag borgarbúa, og horfa á það eitt að komast til valda, hvað sem það kostar.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur mikið af góðu fólki innanborðs, en Villi virðist hafa gjörsamlega misst plottið undanfarna 6 mánuði. Gísli Marteinn, Hanna Birna og sérstaklega Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir sem var að gera fína hluti í leikskólamálum.
Maður bara missir allt álit á stjórnmálamömnnum þegar þeir standa í svona bulli.
Þeir ættu að hætta að hugsa um rassgatið á sjálfum sér endalaust og fara að hugsa um þá sem búa í þessari borg og borga hér sína skatta.
Ekki hægt að kommenta við þessa færslu.