— arnigunnar.net

Archive
January, 2008 Monthly archive

Alfreð hættur með landsliðið. Bömmer, því hann er MAÐURINN.

Fínt viðtal við hann á vefnum Í blíðu og stríðu. Hann er einn af albestu handboltaþjálfurum sem við Íslendingar eigum og hefur gert frábæra hluti með strákana okkar.

Þó svo að við höfum ekki gert okkar allra besta í Noregi undanfarna daga, þá eru margvíslegar skýringar á því. Við settum markið hátt, en náðum þeim þvi miður ekki alveg. En spilum í undakeppni Ólympíuleikanna og það er ágætta út af fyrir sig.

Ég man þegar við spiluðum við Svíana í Globen í Stokkhólmi í undankeppni HM í Þýskalandi sumarið 2006. Við Gulla og Hlynur Snær vorum á staðnum og Hlynur hljóp um allt og öskraði áfram Ísland allann leikinn … og við unnum með 4. Það var mögnuð stund.

Alfreð … danke schön !

Mér er misboðið í dag.

Ég er að vinna heima í dag og er með kveikt á sjónvarpinu og fylgist með fundinum í borgarstjórninni.

Þetta er ekki það sem ég vil sjá, að flokkurinn sem ég hef nánast alltaf kosið (1 undantekning) troði sér til valda hvað sem það kostar. Þetta er bara rugl.

Hingað til hef ég ekki verið neitt sérstaklega hrifinn af Degi B. Eggertssyni, en í dag er hann að tala á réttum nótum. Í stað þess að fara í vörn fyrir sig persónulega og sinn flokk, þá horfir hann á hlutina í stærra samhengi. Spunameistarar Samfylkingarinnar hafa greinilega fengið hann til að taka réttann pól í hæðina á meðan Sjálfstæðismenn virðast kæra sig kollótta um hag borgarbúa, og horfa á það eitt að komast til valda, hvað sem það kostar.

Sjálfstæðisflokkurinn hefur mikið af góðu fólki innanborðs, en Villi virðist hafa gjörsamlega misst plottið undanfarna 6 mánuði. Gísli Marteinn, Hanna Birna og sérstaklega Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir sem var að gera fína hluti í leikskólamálum.

Maður bara missir allt álit á stjórnmálamömnnum þegar þeir standa í svona bulli.

Þeir ættu að hætta að hugsa um rassgatið á sjálfum sér endalaust og fara að hugsa um þá sem búa í þessari borg og borga hér sína skatta.

Auddi er í Þrándheimi á vegum Icelandair sem heldur úti síðunni Í blíðu og stríðu. Hann er með myndavélina með sér og er búinn að pósta þónokkrum viðtölum og atvikum alla keppnina.

Hlynur Snær hló alveg endalaust þegar Fúsi rassskellti Audda á berann bossann í matsalnum … fannst það afskaplega fyndið.

Áfram Auddi … þetta er massa flott :)

John Stewart er minn uppáhaldssjónvarpsmaður, by far. Hann er gáfaður og fyndinn í senn, kemur með alveg svakalega skemmtilega vinkla á bandarískt þjóðfélag.

Það kom víst í fréttunum að þessi útsendari hans væri hérna á landinu fyrir nokkru. Þetta var sent út í gærkvöldi, fyrri hluti af tveimur.

Hafrún Kristjánsdóttir bloggar um skemmtilegann atburð í dag … alveg hryllilega fyndið.