Gleðilega hátið
Soldið langt síðan síðast … but here goes.
Útskriftin gekk vel fyrir sig … frúin fékk fullt af fínum gjöfum og var mjög ánægð með daginn. Ég eldaði humarsúpu ofaní liðið, og held bara að hún hafi heppnast bærilega.
Það hefur verið hefð á mínu heimili svo lengi sem ég man eftir mér að fá heimagerðann í sum jólin, og Gull hefur tekið það upp eftir að hún stal mér af heimili foreldra minna. Þetta hefur alltaf verið tiltölulega hefðbundið, en í þetta sinn prufuðum við nýtt meðlæti í ísinn. Snickers, Toblerone og Hersheys kossar að ógleymdu gamla góða suðusúkkulaðinu fóru í ísinn þetta árið. Verður gaman að smakka allar þessar nýju tegundir.
Við fórum svo á rúntinn í morgun, fórum í Gufuneskirkjugarðinn og heimsóttum Gísla tengdó og Dag Frey. Settum hjá þeim kerti og greinar. Svo heimsóttum við ömmu hennar Gullu á Sóltúni og svo var enn ein kirkjugarðsferðin enn.
Þegar við vorum hjá Guðmundi og Dúfu var Hlynur orðinn eitthvað slappur og við mældum hann þegar við komum heim og hann var með tæplega 39 stiga hita. Gaman að vera veikur um jólin :(
Vil svo enda þetta á gamalli jólaauglýsingu og óska öllum gleðilegra jóla og farsældar á næsta ári.