— arnigunnar.net

Útskrift!

Já … það fór eins og flestir vissu, hún Gulla mín náði öllum prófunum með glans og útskrifast úr skólanum á fimmtudaginn í næstu viku !

Til hamingju með það … !!

Eftir að skólanum lauk, þá er Gulla búin að baka … og baka meira … og baka enn meira. Mér til mikillar gleði.

Svo er kallinn búinn að skrá sig í HR eftir áramótin. Ekki fullt nám, heldur námskeið fram á vor í rekstri og fjármálum … þegar maður er svona með eigin rekstur, þá er betra að hafa þessa hluti á hreinu. Verð tvisvar í viku í skólanum.

Það er ekkert smá spennandi tilhugsun að setjast aftur á skólabekk, og aldrei að vita nema þetta sé bara byrjunin …

Hlynur Snær var aðeins að vakna í nótt … var orðinn soldið spenntur að fá pakka frá Stekkjarstaur. Og svo í morgun, þá biðu hans Latabæjar sokkar. Merkilegt hvað þessir jólasveinar vita hvað gleður börnin …