— arnigunnar.net

Archive
November, 2007 Monthly archive

Hann vinnur alltaf í póker … þetta er ekki sanngjarnt !

Jæja … ég gat ekki bloggað um tilhlökkun mína til að fara á hótel Rangá, því ég hafði ekki hugmynd um að ég væri að fara neitt fyrr en í gær. Gulla sendi mér SMS um að koma heim um hálf fimm leytið. Eins og góðum eiginmanni sæmir, þá var ég mættur um hálffimm leytið og engin Gulla heima. Hún kom seint og um síðir, og enginn Hlynur Snær með.

Þá var hún búin að panta fyrir okkur jólahlaðborð og gistingu á Hótel Rangá fyrir austan fjall. Ég vissi ekki einu sinni að við ættum að gista fyrr en við komum yfir heiðina … þá var frúin ekki alveg klár á hvert ætti að fara.

Við keyrðum þangað og fengum þetta dýrindis hlaðborð og fína herbergi. Ég smakkaði þarna í fyrsta sinn kengúru, strút og dúfu … og svo auðvitað hangjkjöt og lambalæri.

Frábært kvöld og gaman að láta koma sér á óvart … takk Gulla mín :)

Þær vilja fara berbrjósta í sund.

Dúndraði inn eitthvað af myndum í gærkvöldi þegar við Þorgeir komum heim af leiknum. Ég fór sem sagt aftur á Camp Nou hérna í Barcelona og sá Barca sigra Rangers nokkuð örugglega 2-0.

- Myndir frá TechEd 2007 í Barcelona
- Nýjustu myndirnar

Amm … eftir miðavesenið síðast, ákváðum við Þorgeir að fara á Camp Nou í kvöld, ég í annað sinn. Þeir eiga leik við Glasgow Rangers í kvöld í meistaradeildinni. Miðaverðið var aðeins dýrara en á sunnudaginn, en maður er nú ekki á hverjum degi í Barcelona og hefur tækifæri til að fara á leik.

Við fórum niður í bæ í gærkvöldi að fá okkur að borða. Þar voru ekkert nema fullir Skotar úti um allt, og ekki séns að fá borð á neinum veitingastað.

Við enduðum á að fara eitthvað aðeins út fyrir á ítalskann stað, sem var bara mjög góður. Og ekki verra að Bill Gates bauð í matinn :)

Dagarnir hafa verið stífir, mikið af stöffi troðið inn í hausinn á okkur, og vonandi að þetta komi manni eitthvað til góða í framtíðinni.

Mér finnst ég vera eins og lítið barn innanum þessa bjór og kaffisvelgi hérna í Barcelona.

Það fylgir þessum tölvuköllum alveg endalaust kaffiþamb á daginn og endalaust bjórþamb á kvöldin … og ég er bara ekki með …