— arnigunnar.net

Facebook er kúl

Það eru fleiri og fleiri sem ég þekki að koma inn á Facebook. Ég skráði mig þarna inn til að fylgjast með og halda tengslum við Svíana sem voru að vinna með mér. Svo endar þetta í að maður er endalaust að adda nýjum vinum og vandamönnum sem maður rekst á þarna.

Þegar íslendingarnir fóru að bætast á listann minn, þá sá maður í raun hvað íslenskt samfélag er lítið. Fólk sem ég þekki tengist líka innbyrðis á stundum furðulegann hátt. Fólk sem ég hafði ekki hugmynd um að þekktist eða tengdist.

Maður getur endalaust bætt við efni á síðuna sína, skorað á vini sína í spurningaleikjum, póker og mörgu öðru.

Andri og Mummi eru meira að segja mættir á svæðið …

Till þess að sjá prófílinn hjá mér, Andra eða Mumma þarftu að vera skráður inn á Facebook. Ef þú ert þar þegar og ert ekki á vinalistanum mínum, endilega bættu mér við !