— arnigunnar.net

Barca, Barca, Baaaarca!

Mikið rosaleg snilld var þetta … var að koma heim frá Camp Nou, sá Barcelona gegn Real Betis.

Það varð reyndar klikk með miðann minn sem ég var búinn að kaupa, því engir komu miðarnir a hótelið. Og þá voru góð ráð dýr … en ekki eins dýr og maður hefði haldið.

Gaurinn í móttökunni reddaði fyrir mig miða sem var sendur hingað á hótelið með leigubíl á 100 evrur, sem mér fannst ekkert svo slæmt, en hann var alveg í sjokki greyið.

Þetta var alveg svakalega gaman. Ég hef nú farið á þónokkra leiki um ævina, en aldrei á svona stórann völl. Þetta er alveg svakalegt ferlíki … ég er nokkuð viss um að lofthrædda konan mín myndi ekki sitja á efstu hæðinni, það er alveg á hreinu.

Svo er bara reynsla út af fyrir sig að sjá Ronaldinho og Messi í eigin persónu. Messi er svo magnaður leikmaður að það hálfa væri nóg. Og svo setti Ronaldinho 2 úr aukaspyrnum í kvöld. Og svo toppaði Eiður Smári kvöldið með því að koma inn á og spila í 10 mínútur.

Tók smá video á símann

 

Tók mynd á símann:

Barca, Barca, Baaarca !