Benitez er í ruglinu
Ég held að Liverpool verði að taka næsta skref og fá nýjann þjálfara. Benitez er í ruglinu og virðist ekki geta farið með liðið upp á næsta level, þar sem Chelsea, Arsenal og Manchester United búa þessar vikurnar. Hann stillti upp í rosa sókndjörfu 4-3-3 í dag, með meiddann Torres uppi á toppi, Kuyt og Voronin honum til aðstoðar og Stevie G, Mascherano og Alonso á miðjunni.
Vörnin var ekki að eiga góðann dag í dag. Hyypia var út um allann völl, bara ekki þar sem hann átti að vera, í miðju varnarinnar. Finnan og Riise komust varla fram fyrir miðju í dag og Carra átti í erfiðleikum með að höndla burtfloginn Hyypia á móti endalausum hlaupum frá miðjumönnum Arsenal.
Stevie G var ágætur í dag, sýndi mikið hungur til að byrja með og aukaspyrnan sem hann skoraði úr var náttúrulega algjör snilli. En restin af miðjunn var varla að koma frá sér boltanum, hvað þá að sóknarmennirnir gætu tekið við því sem sent var á þá og haldið boltanum í meira en 5 sekúndur.
Það var greinilegt að Arsenal var á gjörsamlega öðru leveli í dag. Þeir stilltu upp 5 manna miðju sem allir voru að spila boltanum á milli sín af þvílíku öryggi og hraða að ég hef sjaldan orðið vitni að öðru eins.
Við eigum langt í land með að vera svona góðir …