Síðasti fyrirlesturinn
Ég rakst á þetta fyrir um viku síðan og horfði á þetta eina nóttina. Þetta er alveg magnað.
Randy Pausch er prófessor við Carnegie Mellon háskólann í Bandaríkjunum og er að deyja. Hann á aðeins nokkrar vikur eftir við góða heilsu. Þetta er fyrirlestur við háskólann sem heitir Really Achieving Your Childhood Dreams. Þetta er fyrirlestur í röð fyrirlestra þar sem þeir sem flytja eiga að ýminda sér að þetta sé þeirra síðasti fyrirlestur og tala um það sem stendur þeim næst á þeim tímapunkti. Nema í þetta sinn er þetta hans síðasti fyrirlestur. Alveg ótrúlegur þessi maður og þetta hafði mikil áhrif á mig. Ekki byrja nama þið getið klárað … þetta er um 90 mínútur að lengd.