— arnigunnar.net

Archive
October, 2007 Monthly archive

Ég held að Liverpool verði að taka næsta skref og fá nýjann þjálfara. Benitez er í ruglinu og virðist ekki geta farið með liðið upp á næsta level, þar sem Chelsea, Arsenal og Manchester United búa þessar vikurnar. Hann stillti upp í rosa sókndjörfu 4-3-3 í dag, með meiddann Torres uppi á toppi, Kuyt og Voronin honum til aðstoðar og Stevie G, Mascherano og Alonso á miðjunni.

Vörnin var ekki að eiga góðann dag í dag. Hyypia var út um allann völl, bara ekki þar sem hann átti að vera, í miðju varnarinnar. Finnan og Riise komust varla fram fyrir miðju í dag og Carra átti í erfiðleikum með að höndla burtfloginn Hyypia á móti endalausum hlaupum frá miðjumönnum Arsenal.

Stevie G var ágætur í dag, sýndi mikið hungur til að byrja með og aukaspyrnan sem hann skoraði úr var náttúrulega algjör snilli. En restin af miðjunn var varla að koma frá sér boltanum, hvað þá að sóknarmennirnir gætu tekið við því sem sent var á þá og haldið boltanum í meira en 5 sekúndur.

Það var greinilegt að Arsenal var á gjörsamlega öðru leveli í dag. Þeir stilltu upp 5 manna miðju sem allir voru að spila boltanum á milli sín af þvílíku öryggi og hraða að ég hef sjaldan orðið vitni að öðru eins.

Við eigum langt í land með að vera svona góðir …

Jamm … ég var búinn að kaupa mér miða fyrir dálitlu síðan, en það var ekki kominn ákveðin dagsetning á leikinn. Þeir flytja nefninlega leikina til og frá þarna niður á Spáni og það gat alveg eins verið að leikurinn yrði settur á laugardaginn, og þá myndi ég missa af honum.

En leikurinn verður sunnudaginn 4. nóvember kl. 19:00 og ég verð þar, ásamt ca 90.000 öðrum :)

Í fyrsta sinn í langann, langann tíma, þá er Hlynur Snær veikur. Eyrnabólga og kvef eru að hrjá hann og fékk hann pensillínskammt í morgun. Pabbi gistir hjá okkur þessa dagana og hefur hjálpað til, annars höfum við Gulla verið að skipta dögunum á milli okkar.

Við feðgarnir tókum góðann Valspakka á daginn í dag. Fórum eldsnemma í morgun (kl. 9:.15) niður í Valsheimili í íþróttaskólann. Það tók rétt tæplega klukkutíma.

Óskar Bjarni var búinn að minnast á það við okkur að prufa að koma á handboltaæfingu, hún væri strax á eftir íþróttaskólanum. Við ákváðum að testa þetta … maðurinn er nú handboltaþjálfari. Það eru reyndar eldri strákar þarna, en það sakaði ekki að prófa.

Þegar við komum í dyrnar voru þarna ekkert nema risavaxin tröllabörn sem Hlyni leist nú ekkert sérstaklega vel á. En hann beit á jaxlinn, litli hermaðurinn okkar og lét sig vaða. Þeir ætluðu að hita upp í stórfiskaleik … það er nú ekki svo slæmt.

Það er skemmst frá því að segja að handboltaæfingin hjá syni mínum entist í um það bil 14 sekúndur. Hann hljóp eina ferð yfir völlinn, og rakst þar á eitt tröllabarnið og lá óvígur eftir. Og tilkynnti mér það þegar hugguninni var lokið að hann ætlaði ekki að koma aftur á handboltaæfingu fyrr en hann væri orðinn 8 ára !

Eftir þetta komum við heim tókum við því rólega í smá stund … elsti Valsarinn í fjölskyldunni mætti á svæðið með afruglarann sinn og við horfðum á Everton – Liverpool í sjónvarpinu.

Fórum svo niður í Valsheimili kl. hálf 4 að horfa á Val – ÍBV í handboltanum. Þegar við mættum á svæðið, þá var tómt húsið og ekkert að gerast. Þá hafði leiknum verið frestað til kl. fimm. Og fyrst við vorum mættir, þá biðum við bara. Hlynur og strákur að nafni Siggi (sem Hlynur hafði aldrei séð áður) hlupu og hlupu og hlupu og hlupu um allt hús, fram að leik, allann fyrri hálfleikinn, hálfleikinn sjálfann og seinni hálfleikinn.

Enda voru sumir orðnir ansi lúnir á leiðinni heim.

Í sárabætur fyrir klúðraða handboltaæfingu með tröllabörnunum, þá ætlum við að prufa að fara á fótboltaæfingu á morgun … það eru víst minni börn þar.

Fann þetta á Digg áðan … er á þýsku, en hryllilega fyndið engu að síður.


Absolutely Hilarious Bathroom Mirror Prank – Watch more free videos

Hlynur Snær lét mig skrifa niður sögu þegar við komum heim af leikskólanum í dag. Og að venju gerði ég eins og mér var sagt :o

Sagan fer hér fyrir neðan :)

Fyrir langa löngu var einn strákur og hann heitir Svampur Sveinsson.

Hann var alltaf kjáni. Og slá. Það átti að kenna honum að slá ekki. En hann gat ekki hætt þessu.

Pabbi hans fór út á fótboltaleik og vann bikar. Hann var svo duglegur að hann gat ekki spilað meiri íþróttir.

En strákurinn var svo leiður að hann gat næstum því dáið.

En eina nóttina kom norn að drepa hann en hún gat það ekki. En hann gat það.

Hann óskaði eina nóttina að fá bílatölvuleik. En hann fékk Super Mario leik, svo henti hann Super Mario leiknum langt út til Svíþjóðar.

Næst fékk hann bílaleikinn sem hann óskaði sér, en hann henti honum ekki út um gluggann, heldur spilaði hann.

Næst fékk hann fána. Hann fékk þyrlu með tvo vængi, stórann og lítinn, var hvítur.

Og hann átti S og U og R og S og Y og O og T.

Ef þið getið lesið út úr því sem er í síðustu línunni, þá fattið þið hvað hann var að skoða á meðan hann samdi söguna.