Still here
Jæja … flutt inn og allt í blússandi gír. Það eru ennþá fullt af smáverkefnum sem bíða, en það er ólýsanlega gott að vera loksins flutt inn og hætt að búa í ferðatösku.
Hlynur Snær telur nú niður dagana þangað til hann verður 5 ára … þá ætlar hann nefninlega að missa tennurnar sínar. Það var víst einhver á leikskólanum sem missti barnatennurnar, og sá var 5 ára, og minn greip það bara í sig. Vonandi verður hann ekki svekktur þegar hann kemst að því að allar tennurnar verða á sínum stað þegar hann vaknar 11. ágúst.
Það er ótrúlegt til þess að hugsa að barnið sé að verða 5 ára … við Gulla búin að vera saman í 10 ár og ég rétt skriðinn yfir þrítugt :o
Hlynur Snær er þegar búinn að eignast nokkra vini í götunni. Beint á móti okkur er einn nýorðinn 8 ára sem hann hefur aðeins leikið sér með, og við hliðina á honum er annar sem er aðeins mánuði eldri en Hlynur Snær. Þeir eru búnir að bralla ýmislegt síðan við fluttum inn. Gulla kannast við mömmu þessa stráks, var víst að selja með henni Tupperware (sem áhugasamir geta fengið gefins við tækifæri í Fannafold 130).
Af vinnunni er það að frétta að við erum komnir með endanlega skrifstofu (allavega þangað til við verðum of stórir fyrir hana). Við ætlum að koma okkur fyrir uppi á Stórhöfða, í ágætis herbergi þar. Það er alveg skelfilega stutt í vinnunna fyrir mig og alveg 100% víst að ég kem til með að sprikla eitthvað á hjólinu í vinnuna, það er alveg á hreinu. Við erum meira að segja búnir að fá gefins eitthvað af húsgögnum … vil bara ekki segja hvar … veit ekki hvort ég má það, en við kunnum þeim aðila bestu þakkir.
Síðan við fluttum inn er búinn að vera þvílíkur gestagangur … næstum fólk í mat á hverju kvöldi … greinilegt að einhverjir voru farnir að sakna okkar (eins og við allra). Okkur finnst þetta rosalega skemmtilegt að umgangast allt þetta fólk og vonum að þetta komi til með að halda áfram … svo finnst okkur líka svo gaman að sýna nýja fína húsið okkar :)
Jæja … þetta er orðið gott í bili … best að fara að koma sér í háttinn.