— arnigunnar.net

Svíþjóð – Ísland á miðvikudaginn

Úff … ég ætla rétt að vona að íslenska landsliðið hífi upp um sig buxurnar í leiknum næsta miðvikudag. Þá þurfum við fjölskyldan ekki að skammast okkar mikið. Pabbi, Lea og Sigurlaug koma á miðvikudagsmorguninn og við Gulla ætlum með þeim á Råsunda að sjá leikinn. Svavar mágur ætlar að koma með líka. Vonandi verðum við okkur ekki til skammar …

Við Svavar vorum reyndar með ágætis plan … ef að þetta er eitthvað að ganga illa, þá klæðum við okkur í sænskar treyjur, hlaupum inn á völlinn og leggjum til dómarans … þá verður okkur dæmdur sigur 0-3 :)