— arnigunnar.net

Archive
June, 2007 Monthly archive

Troðinn gámur

Þá er gámurinn farinn sína leið til Íslands. Ég er hérna einn í kotinu með fartölvuna í fanginu, sitjandi á gólfinu og skrifa þetta. Get ekki beðið eftir að komast heim.

Þegar við vorum á leiðinni út á flugvöll í morgun dó Ópelinn … var að keyra, og hann bara drap á sér. Svavar mágur að tímareimin sé farin (veit samt ekki alveg hvert hún fór).

Ég hafði talað við einhvern hjá Opel á Íslandi og fékk töluna 90-95 þúsund km sem tímareimin ætti að duga. Það er svo svíndýrt að gera við bíla hérna að við ætluðum að láta gera þetta heima á Íslandi. Bíllinn er keyrður rétt um 99.000 km núna. En það átti ekki fyrir okkur að liggja og ég var vægast sagt ekki sáttur við lífið í dag. Eva bjargaði nú helling með að koma með allt dótið sem við vorum með í bílskúrnum þeirra síðan við vorum að sýna húsið.

En á morgun verður maður að taka á því og ganga frá restinni fyrir gáminn sem kemur á miðvikudaginn. Ég fæ bílinn hans Svavars lánaðann og ætla að klára þetta mæð stæl.

Ég kvaddi alla á skrifstofunni hjá Holiday Autos í dag og það var skrítin stund, þó ég komi til með að vera hérna á ferðinni töluvert, ZEUS heldur áfram að vinna fyrir þá á fullu stími.

Það var fullt út úr dyrum nánast í gær af fólki að kveðja Gullu og Hlyn … Hlynur Snær fékk örugglega fleiri pakka í gær en í síðustu afmælisveislu. Grannarnir Veronika, Johan og Adam komu fyrst. Svo komu Svavar og Katarina + börn. Svo mættu Julita og fjölskylda, og svo að lokum bestu vinir okkar hérna, Eva, Staffan og tvíburarnir (Samúel varð eftir heima). Og þau gáfu okkur eiginlega bestu gjöfina. Þau eru búin að bóka flug til Íslands 28. desember og ætla að vera hjá okkur um áramótin. Það verður alveg svakalega gaman að sýna þeim landið okkar og flugeldasýninguna á gamlárskvöld. Ég er þess vegna búinn að leggja inn pöntum á gott veður og vona að þið gerið slíkt hið saman … og kaupið nóg af flugeldum svo þau verði ekki fyrir vonbrigðum.

Gulla fékk afhendann nýja bílinn okkar í dag, sem var nú svolítið kaldhæðnislegt miðað við að Ópelinn ákvað að taka sér hvíld … við keyptum Hondu Accord sem er víst algjör draumakerra … ég er ekkert viss um að ég fái bílinn til baka þegar ég kem heim. Þannig að ef þið sjáið rauða Hondu Accord á götunni, þá gæti það verið Gulla … alveg örugglega ekki ég :(

Jæja … farinn að pakka … komið gott í bili. Skrifa örugglega ekki meira fyrr en ég kem heim til Íslands.

Varð að pústa …. útskýri síðar …

Já …skjótt skipast veður í lofti. Við afhendum húsið hérna í Svíþjóð á fimmtudaginn í næstu viku og ég flýg heim sama dag.

Daginn eftir … þá fáum við Fannafoldina afhenta !!!

Yes … þú last rétt. Einum og hálfum mánuði fyrir umsamda dagsetningu fáum við húsið … við erum ekkert smá sátt við það :)

Þokkalega magnaður gaur … og hann selur gemsa á daginn … geggt !